Fara í efni
Samband íslenskra framhaldsskólanema
← Fréttir

17. apríl 2025

Skandall sigurvegari söngkeppninnar

Sigurvegari söngkeppni framhaldsskólanna 2025

Söngkeppni framhaldsskólanna fór fram í Háskólabíói laugardaginn 12.apríl sl. 24 framhaldsskólar víðsvegar um landið tóku þátt í keppninni sem var öll hin glæsilegasta. Keppnin var í beinni útsendingu á RÚV og er talið að um 58.000 manns hafi horft á keppnina í sjónvarpinu (óstaðfestar tölur).

Það fór svo að fulltrúi Menntaskólans á Akureyri bar sigur úr býtum, en þetta er í þriðja sinn sem MA sigrar söngkeppni framhaldsskólanna. Atriðið bar heitið Skandall og flutti hún lagið “Plug in baby” eftir hljómsveitina Muse.

Við óskum Menntaskólanum á Akureyri innilega til hamingju með sigurinn!

Sigurvegari söngkeppni framhaldsskólanna 2025
Neminn | Neminn.is
Skandall sigurvegari söngkeppninnar
Neminn | Neminn.is