
Ný stjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, var kosin á aðalþingi SÍF þann 5.september sl. Ný stjórn SÍF er í dag eftirfarandi; Emil Arthúr Júlíusson forseti, Ella Birna Sigurðardóttir varaforseti, Ágúst Margeirsson gjaldkeri, Elmar Ricart ritari, Ester Mía Árnadóttir alþjóðafulltrúi, Matthías Ragnar Wiencke iðnnemafulltrúi, Alexander Dýri Eyjólfsson, Gabríella Ósk Gomez og Embla Hlökk Jóhannesdóttir meðstjórnendur.
SÍF vinnur að hagsmunagæslu fyrir framhaldsskólanema, meðal annars með þátttöku í ráðum og nefndum, umsögnum um mál sem varða framhaldsskólastigið og samtali við stjórnvöld. Sambandið styður jafnframt nemendur og nemendafélög og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi í gegnum evrópsku nemendasamtökin OBESSU.
Í síðustu stjórn sambandsins var Halla Stella Sveinbjörnsdóttir forseti og Ella Birna Sigurðardóttir varaforseti. Einar Jónsson gegndi embætti gjaldkera og Ágúst Margeirsson var ritari. Þá sátu einnig í stjórn Fjóla Ösp Baldursdóttir sem alþjóðafulltrúi, Elmar Ricart sem iðnnemafulltrúi, auk þeirra Alexanders Dýra Eyjólfssonar, Emilíu Óskar Hauksdóttur og Ara Eyvindarsonar sem meðstjórnendur. Við þökkum Höllu Stellu, Einari, Fjólu Ösp, Emilíu Ósk og Ara kærlega fyrir þeirra störf.
Ný stjórn tekur við fjölbreyttum verkefnum á komandi starfsári, þar sem hagsmunagæsla, réttindi framhaldsskólanema og virk þátttaka ungs fólks í ákvörðunum sem snerta þeirra nám og skólaumhverfi verða áfram í forgrunni.
