Stéttarfélög
Samiðn
Samband iðnfélaga er landssamband stéttarfélaga sem áður voru í Málm- og skipasmíðasambandi Íslands og Sambandi byggingarmanna, auk Félags hársnyrtisveina og Félags iðn- og tæknigreina.
Rafiðnaðarsamband Íslands
Rafiðnaðarsamband Íslands er landssamband stéttarfélaga rafiðnaðarmanna. RSÍ var stofnað árið 1970 af 400 félagsmönnum. Í dag er heildarfjöldi félagsmanna um 6.500 sem skiptast í 10 aðildarfélög. Fjölmennastir eru rafvirkjar eða um 1900, þá rafeindavirkjar eða um 1000, símamenn eru um 1000, tæknimenn í rafiðnaði um 1000, símsmiðir um 250, nemar í rafiðnum um 400 og sýningarmenn um 30. Sambandið er starfsgreinasamband sem í eru allir launþegar sem starfa í rafiðnaðargeiranum, hvort sem þeir hafa löggilt sveinspróf eða ekki. Allur félagslegur rekstur er í höndum sambandsins ásamt umsjón eigna, sjóða og gerð kjarasamninga.
Matvís
MATVÍS er félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, þ.e.a.s. bakara, framreiðslumanna, kjötiðnaðarmanna, matreiðslumanna, nema og annara sem starfa við framreiðslu, matreiðslu og sölu á matvælum og félagið ákveður að veita viðtöku.
Félag Bókagerðamanna
Félagið er samtök launafólks í prentiðnaði, grafískri hönnun og tengdum greinum
og tilgangur þess er að efla einingu félagsmanna og standa vörð um hagsmuni þeirra í hvívetna, að styrkja félagsmenn í atvinnuleysi, veikindum og þegar þeir verða að láta af
störfum fyrir örorku eða aldurs sakir, að semja um lágmarkslaun og önnur kjör fyrir félagsmenn, að standa vörð um hagsmuni félagsmanna á vinnumarkaði og í atvinnumálum almennt.
VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna
VM er meðal stærstu verkalýðsfélaga landsins. Þar sameinuðust þann 14. október 2006, tvö gamalgróin og sterk verkalýðsfélög sem samtals eiga 186 ára sögu að baki, félög sem þekkt eru fyrir kraftmikið starf við að efla og bæta atvinnu, menntun og lífskjör félagsmanna sinna.
Hlutverk VM er viðamikið. Það felst í stöðugum samskiptum við vinnumarkaðinn, stjórnvöld og menntastofnanir. VM leggur áherslu á að á vinnumarkaðnum fara saman hagsmunir vinnuveitenda og launþega. VM eru ábyrg samtök sem bæði vilja og geta tekið á ábyrgan hátt þátt í þeim breytingum sem framundan eru í samfélagi á hraðri þróun.
VR
VR var stofnað árið 1891 af launþegum og atvinnurekendum í verslunarstétt sem Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og varð hreint launþegafélag 28. febrúar 1955. Nafni félagsins var breytt í VR á aðalfundi þann 26. apríl 2006. Tilgangur félagsins er að vinna að bættum kjörum og auknum réttindum félagsmanna sinna. Félagssvæði VR nær yfir Reykjavík, Kópavog, Seltjarnanes, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hvalfjarðarsveit og Akraneskaupstað. Árið 2003 var sameining VR og Verslunarmannafélags Akraness samþykkt. Félagsmenn VR eru um tuttugu og fimm þúsund talsins og starfa við meira en eitthundrað starfsgreinar.
Efling
Efling stéttarfélag var stofnað í desember 1998 og tók til starfa um áramótin 1999. Félagið varð til við sameiningu Dagsbrúnar & Framsóknar-stéttarfélags við Starfsmannafélagið Sókn og Félag starfsfólks í veitingahúsum. Við sameininguna varð til næst stærsta stéttarfélag á landinu með um 14.000 félagsmenn. Félagið sameinaðist Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík um áramótin 1999-2000. Við það urðu félagsmenn um 16.000. Tilgangur félagsins er sá að efla og styðja hag félagsmanna og menningu og stuðla að því að verkafólk taki virkan þátt í stjórnmálum lands og sveitarfélaga í þágu hagsmuna þess.