Jöfnunarstyrkur
Jöfnunarstyrkur er fyrir framhaldsskólanemendur sem ekki eiga rétt á námslánum.
Almenn skilyrði fyrir veitingu dvalarstyrks eru að nemandi:
- Stundi reglubundið framhaldsnám hér á landi sem ekki er á háskólastigi eða gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi,
- Geti ekki stundað sambærilegt nám frá lögheimili sínu.
- Verði að vista sig a.m.k. 30 km frá lögheimili sínu og fjarri fjölskyldu vegna námsins.
Frekari upplýsingar má nálgast á skrifstofu félagsins eða á www.lin.is
Sjáðu einnig: Þjónusta LÍN