Íbúð í námi

SÍF hefur séraðild að Byggingarfélagi námsmanna, skammstafað BN. Hlutverk BN er að bjóða námsmönnum í nemendafélögum innan BN að leigja hentugt og vel staðsett húsnæði.

Boðið er uppá eins- og tveggja manna herbergi, einstaklingsíbúðir (studio), tveggja herbergja íbúðir (paríbúðir) og þriggja herbergja íbúðir. Umsóknum um íbúð þarf að skila með rafrænum hætti á umsóknarformi sem er að finna á heimasíðu BN (www.bn.is).

Nýnemar geta ekki sótt um húsnæði hjá Byggingafélagi námsmanna fyrr en eftir að þeir hafa sótt um skólavist og staðfesting um skólavist liggur fyrir. Aðrir nemendur geta sótt um íbúð hvenær sem er ársins.

Þeir sem eiga rétt á íbúðunum eru stúdenta-/nemendafélög innan aðildarskóla BN. Aðildarskólarnir eru nú: Kennaraháskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Fjöltækniskóli Íslands auk séraðildar félagsmanna innan Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Nú sem stendur hafa aðeins iðnnemar innan SÍF aðgang að íbúðunum.


Hönnun: thordarson.is