Íþróttavakning framhaldsskólanna

Íþróttavakning framhaldsskólanna er eitt af nokkrum verkefnum sem stýrihópurinn um Heilsueflingu og forvarnir í framhaldsskólum (HOFF) hefur sett á laggirnar. Átakið stóð yfir veturinn 2008-2009.

Markmiðið með verkefninu var fyrst og fremst að fá sem flesta framhaldsskólanema til þess að hreyfa sig á hverjum degi. Einnig að hvetja nemendur til þess að auka vægi hreyfingar í daglegu lífi, en það leiðir til bættrar heilsu og meiri árangurs í lífi og starfi.

Þann 12. nóvember 2008 var verkefninu hrint af stað, í nánu samstarfi við skólana og nemendafélögin. Þennan dag tóku 5000 framhaldsskólanemar, í alls 21 framhaldsskólum, þátt í 3 km. göngu eða skokki.

  • Frítt í sund stóð yfir dagana 19.-25. janúar 2009. Þá fengu framhaldsskólanemendur afhent sundkort og gafst kostur á að vinna stig fyrir skólann sinn með því að synda 200 metra á dag þessa viku.
  • Einnig fóru af stað keppnir í einstaka íþróttagreinum á milli skólanna í upphafi nýs árs og auglýstu sérsamböndin eftir þátttöku nemenda í sundi, frjálsíþróttum, blaki, körfubolta og futsal. Úrslit í einstaka keppnum gáfu skólunum stig, sem reiknuðust inn í heildarstigafjöldann.
  • Í mars stóðu nemendafélög, í samvinnu við íþróttakennara, fyrir uppákomum sem kröfðust hreyfingar. Þeir nemendur sem tóku þátt söfnuðu stigum fyrir skólann sinn.

Hönnun: thordarson.is