9. kafli – Sífarar
37. gr.
Hvert aðildarfélag skal útnefna einn fulltrúa, svokallaðan Sífara. Hlutverk hans er að vera tengiliður aðildarfélagsins við SÍF.
38. gr.
SÍF væntir þess af aðildarfélögum að haldnar verði árlegar lýðræðislegar kosningar í hlutverk Sífara auk varamanns.
39. gr.
Sífari gegnir stöðu í stjórn SÍF og er einnig heimilt að bjóða sig fram í framkvæmdastjórn. Hann skal því mæta á aðalþing, stjórnarfundi og aðra boðaða viðburði, ellegar staðgengill hans.
40. gr.
Ætlast er til að Sífari komi sér inn í mál SÍF og taki virkan þátt í starfsemi þess sem kostur gefst enda er honum ætlað að vera forsvarsaðili sambandsins í sínum skóla og skal sjá um að kynna sambandið fyrir samnemendum sínum.