8. kafli – Framkvæmdastjórn
30. gr.
Framkvæmdastjórn stjórnar daglegri starfsemi SÍF í samræmi við lög þess, stefnuskrá og samþykktir stjórnarfunda.
31. gr.
Framkvæmdastjórn er heimilt að fela vinnunefndum, er hún kýs, að fara með einstök dagleg verkefni SÍF í tilteknum málum.
32. gr.
a) Formaður boðar framkvæmdastjórnarfundi, leggur fram dagskrá og stýrir fundunum.
b) Ritari skráir fundargerðir og lýsir skilmerkilega öllum ákvörðunum og samþykktum stjórnar jafnt sem framkvæmdastjórnar. Ritari heldur utan um fylgiskjöl hvers fundar og kemur þeim fyrir til geymslu. Ritari skal ætíð setja sig það vel inní mál hverju sinna að hann sé hæfur til að taka við af formanni í forföllum.
c) Gjaldkeri skal í samstarfi við bókara SÍF leggja reglulega fram rekstrarreikninga, kynna fjárhagsstöðu og áætlanir eftir samþykktum framkvæmdastjórnar hverju sinni og vera ráðgjafi framkvæmdastjórnar varðandi styrkveitingar. Gjaldkeri skal bera fram ársreikninga á aðalþingum og stjórnarfundum, auk þess skal hann upplýsa framkvæmdarstjórn um stöðu fjármála á hverjum framkvæmdastjórnarfundi.
d) Ábyrgðamaður alþjóðamála skal sjá um samskipti milli SÍF og annarra samtaka og stofnana erlendis.
e) Ábyrgðamaður forvarnastarfs skal vera fulltrúi SÍF í allri vinnu tengdri þessum málaflokki.
f) Verkefnastjórar skulu vera tveir. Ábyrgð á stærstu verkefnum ársplans SÍF deilist á milli þeirra og skulu þeir sjá til þess að verkefnum sé framfylgt. Verkefnastjóri skipar vinnuhóp í kringum hvert það verkefni sem hann er ábyrgur fyrir. Í hverjum vinnuhóp skulu vera: Verkefnastjóri, tveir úr stjórn SÍF, tvö opin sæti. Opnu sætin mega fara til hvers er aðild á að SÍF, hvort sem viðkomandi situr í stjórn félagsins eða er nemandi eða stjórnarmeðlimur í einhverju aðildarfélaganna.
33. gr.
Framkvæmdastjórn ein hefur heimild til að skuldbinda félagið fjárhagslega.
34. gr.
Framkvæmdastjórn skal funda svo oft sem þurfa þykir. Formaður eða ritari boðar framkvæmdastjórnarfund og skal það gert með minnst tveggja daga fyrirvara. Fundur framkvæmdastjórnar er lögmætur þegar einfaldur meirihluti stjórnar tekur þátt í fundinum.
35. gr.
Framkvæmdastjórn er heimilt að greiða stjórnarmönnum útlagðan kostnað vegna starfa fyrir sambandið.
36. gr.
Framkvæmdastjórn SÍF skal halda minnst 2 fundi á ári með fulltrúum allra aðildarfélaga SÍF og ákveður framkvæmdastjórn fulltrúafjölda félaga hverju sinni.