7. kafli – Stjórn
25. gr.
Stjórn samanstendur af sjö manna framkvæmdastjórn, 5 – 8 manna aðalstjórn og Síförum frá öllum aðildarskólum.
26. gr.
Stjórn hefur milli þinga æðsta vald í öllum málefnum SÍF og ber hverjum þeim er trúnaðarstarfi gegnir fyrir sambandið, að hlýða fyrirmælum hennar og úrskurði.
27. gr.
Stjórn er heimilt að víkja trúnaðarmönnum úr starfi, sýni þeir ábyrgðarleysi eða dræma mætingu á fundi. Slík ákvörðun skal lögleg ef samþykkt er af 3/4 stjórnarmanna, annars ógild. Heimilt er að vísa stjórnarmanni úr stjórn ef hann mætir ekki á tvo fundi í röð án þess að hafa boðað lögmæt forföll.
28. gr.
Stjórn situr aðalþing sem um þingfulltrúa væri að ræða, með fullum réttindum. Framkvæmdastjórn SÍF situr aðalþing með fullt málfrelsi og tillögurétt. Meðlimur framkvæmdastjórnar hefur einungis kosningarétt ef hann situr þing sem fulltrúi síns skóla.
29. gr.
Stjórn skal funda sem þurfa þykir en þó ekki sjaldnar en einu sinni hvora önn. Formaður eða ritari boðar stjórnarfund með minnst tveggja vikna fyrirvara. Formanni eða ritara er skylt að boða stjórnarfund ef minnst 10 stjórnarmeðlimir eða 1/3 aðildarfélaga æskja þess. Fundur stjórnar er lögmætur ef löglega er til hans boðað og minnst 15 stjórnarmenn mæta.