6. kafli – Kosningar
22. gr.
Stjórn SÍF skal kosin úr hópi þingfulltrúa og félagsmanna á reglulegum aðalþingum, til eins árs í senn og skulu kosningar fara fram sem hér segir:
a) Kosið skal í allar stöður framkvæmdastjórnar á aðalþingi.
b) Í stjórn eiga sæti allir Sífarar aðildarfélaga, formaður, ritari, gjaldkeri, alþjóðafulltrúi, forvarnafulltrúi og tveir verkefnastjórar auk kjörinna aðalfulltrúa.
c) Þá skal næst kjósa 5-8 aðalmenn og 3 varamenn.
d) Kosin skal sérstök ráðgjafanefnd skipuð 2-4 fyrrverandi framkvæmdastjórnar-meðlimum.
23. gr.
a) Í byrjun þings SÍF skal þingið kjósa þrjá einstaklinga í hvatningarnefnd þingsins, einn af þremur skal vera sitjandi formaður, æski hann þess. Þó skal formaður ekki sitja í nefndinni hyggist hann bjóða sig fram í trúnaðarstöðu innan sambandsins. Hlutverk hvatningarnefndar er að hvetja fólk og leiðbeina þeim hvernig má bjóða sig fram í stjórn og aðrar trúnaðarstöður á þinginu.
b) Aðrir þingfulltrúar hafa jafnan rétt til uppástungna um menn í stjórn og trúnaðarstöður, þá má þingforseti leyfa örstuttar athugasemdir um það ef hlutaðeigandi telur sig ekki geta tekið kjöri.
24. gr.
Heimilt er að kjósa menn til starfa í stjórn þó svo þeir hafi lokið námi í framhaldsskóla. Slík heimild nær ekki nema til þriggja samliggjandi kjörtímabila. Framkvæmdastjórn skal þó vera skipuð framhaldsskólanemum að meirihluta.