5. kafli – Fulltrúakjör
20. gr.
Formaður og Sífari viðkomandi aðildarfélags eru sjálfkjörnir sem þingfulltrúar.
Formaður hvers nemendafélags er ábyrgur fyrir því að útnefna aðra fulltrúa á aðalþing fyrir hönd síns nemendafélags en kjör þeirra fari á þessa leið:
Hvert aðildarfélag með 500 eða færri nemendum hefur fasta 3 fulltrúa. Eftir það bætast við fulltrúar sem hér segir:
1 fulltrúi fyrir 501-600
1 fulltrúi fyrir 601-700
1 fulltrúi fyrir 701-800
Og 1 fulltrúa fyrir hverja byrjaða 200 nemendur þar á eftir.
Hverju nemendafélagi er leyfilegt að skrá jafnmarga fulltrúa til vara. Varafulltrúar eru kallaðir til ef að til forfalla kemur hjá aðalfulltrúum.
21. gr.
a) Svar við kalli fulltrúa skulu send skrifstofu SÍF í síðasta lagi 14 dögum áður en aðalþing hefst. Kjörbréf skal fyllt út á þingstað áður en þing er sett.
b) Framkvæmdastjórn skal þá skipa þriggja manna kjörbréfanefnd. Skal hún skila áliti
skriflega á setningarfundi þingsins. Aðeins skal þó samþykkja kjörbréf þeirra fulltrúa sem
mættir eru. Ef fulltrúi mætir síðar þá skal bera kjörbréf hans upp sérstaklega. Tilkynna
skal þingforseta tafarlaust komu nýs fulltrúa og skal afgreiða kjörbréf hans strax.