2. kafli – Aðild og aðildarfélög

3. gr.

Nemendafélög í framhaldsskólum, félagsmenn þeirra og þeir iðn- og starfsnámsnemar sem stunda nám á vinnumarkaði geta átt aðild að Sambandi íslenskra framhaldsskólanema.

4. gr.
Einstaklingur sem ekki er meðlimur í nemendafélagi getur fengið einstaklingsaðild að SÍF. Umsókn hans er afgreidd af framkvæmdastjórn og öðlast hann þegar öll réttindi.

5. gr.
Ef nemendafélag óskar eftir að ganga í sambandið getur framkvæmdastjórn veitt því viðtöku til næsta aðalþings eða stjórnarfundar. Þau hafa þar með sömu réttindi og þau félög sem hafa fulla aðild. Á aðalþingi eða stjórnarfundi er svo lagður fullnaðarúrskurður á aðildarumsókn.

6. gr.
Umsókn nemendafélags að Sambandi íslenskra framhaldsskólanema skal aðeins tekin gild berist hún skriflega til SÍF, undirrituð af stjórn nemendafélags. Einnig skal fylgja afrit af lögum félagsins.

7. gr.

Öll aðildarfélög hafa fullt frelsi um sín innri mál, að því gefnu að ekki brjóti í bága við sambandslögin eða samþykktir aðalþinga.

8. gr.
Úrsögn nemendafélags úr sambandinu er aðeins tekin gild berist hún skriflega til SÍF, undirrituð af stjórn nemendafélags og ábyrgðarmanni félagsins.

9. gr.
Stjórn hefur rétt til að víkja aðildarfélagi úr sambandinu ef hún lítur svo á að það hafi gert sig sekt um atferli sem sé sambandinu til tjóns eða vanvirðu, brjóti í bága við lög SÍF eða samþykktir aðalþinga. Leggja skal slíkt fyrir næsta aðalþing, er leggur fullnaðarúrskurð á það.
Brottrekstur kemur þó ekki til framkvæmda nema samþykktur sé með 3/4 atkvæða á löglegum stjórnarfundi, eða 2/3 atkvæða á aðalþingi.
Hvert það félag sem vikið hefur verið úr Sambandi íslenskra framhaldsskólanema missir þegar í stað öll réttindi sín í sambandinu og fulltrúar þess missa þar með umboð til trúnaðarstarfa innan SÍF. Varamenn stjórnarmeðlima skulu taka við stöðum þeirra.
Ef um er að ræða framkvæmdastjórnarmeðlim skal honum gefið svigrúm til að halda stöðu sinni, enda kosinn sem einstaklingur en ekki fulltrúi skóla síns.


Hönnun: thordarson.is