13. kafli – Reglugerðir
49. gr.
Framkvæmdastjórn hverju sinni er heimilt að setja reglugerðir sem skilgreina nánar starfsemi SÍF út frá lögum þessum. Reglugerðir sem stjórn setur öðlast strax gildi og gilda fram að næsta aðalþingi þar sem þær skulu annaðhvort staðfestar eða felldar úr gildi. Reglugerðir sem staðfestar eru á aðalþingi verða þá aðeins felldar úr gildi á öðru aðalþingi.
50. gr.
Stjórn hefur heimild til að leiðrétta stafsetningar-, málfars-, tilvísunar- og innsláttvarvillur í lögum þessum án þess að bera þær breytingar upp fyrir þing enda breytist ekki merking viðkomandi greina.
51. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi, 19. september 2010, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ