12. kafli – Lagabreytingar

48. gr.

Lögum sambandsins má aðeins breyta á reglulegum aðalþingum. Skulu viðhafðar tvær umræður um lagabreytingar, þannig að eftir framsögu á þingfundi er heimilt að vísa breytingum til laganefndar og skoðast umræður í laganefnd, sem fyrri umræða. Síðari umræða fer fram á þingfundi og teljast breytingar ekki samþykktar nema 2/3 viðstaddra þingfulltrúa samþykki þær.

a) 22. grein, sem fjallar um kosningar í stjórn má ekki breyta nema með samþykkt 4/5 þingfulltrúa.

b) Tillögur um breytingar á lögum sem aðrir bera fram en stjórn skal berast stjórn tveimur vikum fyrir þing. Komi fram ný lagabreytingatillaga á aðalþingi frá öðrum en stjórn skal fundarstjóri leita  samþykkis þingsins um hvort fjallað skuli um tillöguna. Samþykki þingið undanþáguna skal fjallað um tillöguna eins og um tillögu sem skilað hefur verið með löglegum fyrirvara.


Hönnun: thordarson.is