11. kafli – Fjármál
45. gr.
Á þingi skal leggja jöfnunargjald á hvert aðildarfélag og skal það deilt jafnt niður á ferðakostnað þingfulltrúa þeirra aðildarfélaga, sem aðsetur hafa fjarri þingstað.
46.gr
Reikningsár sambandsins skal vera frá 1. september til 31. ágúst ár hvert. Gjaldkeri sambandsins heldur reikninga yfir tekjur og gjöld þess. Reikningar sambandsins skulu í lok hvers reikningsárs lagðir fyrir stjórn endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda. Reikningarnir skulu síðan lagðir fyrir næsta reglulega aðalþing til fullnaðarafgreiðslu.
47. gr.
Leysist sambandið upp, skulu peningaeignir þess leggjast inn á sparisjóðsbók til fimm ára, undir gæslu menntamálaráðuneytisins. Svo og skulu aðrar eignir sambandsins afhentar menntamálaráðuneytinu til varðveislu þar til sambandið hefur verið endurreist.
Ef sambandið hefur ekki verið endurreist að 5 árum loknum skulu allar eignir félagsins dreifast á milli þeirra nemendafélaga sem voru í sambandinu þegar það leið undir lok. Eignirnar skulu skiptast í samræmi við nemendafjölda nemendafélagsins þegar sambandið leið undir lok.