10. kafli – Ráðgjafaráð

41. gr.

Ráðgjafaráð skal skipað fyrrum framkvæmdastjórnarmeðlimum.

42. gr.

Hlutverk ráðgjafa er að viðhalda þekkingunni innan SÍF. Þeir skulu veita framkvæmdastjórn upplýsingar og fræðslu um hvert hlutverk þeirra er, hvað þarf að gera og hvernig best er að fara að.

43. gr.

Ráðgjöfum er ekki skylt að taka þátt í daglegri starfsemi SÍF en æskilegt er að þeir taki fullan þátt í byrjun nýs starfsárs svo ný framkvæmdastjórn njóti stuðnings.

44. gr.

Ráðgjöfum er heimilt að sjá um ákveðin verkefni eða sækja fundi fyrir sambandið fái þeir umboð frá framkvæmdastjórn. Þeim er þá skylt að upplýsa framkvæmdastjórn reglulega um framvindu mála og skulu víkja úr sínum verkefnum telji framkvæmdastjórn betra að annar taki við.


Hönnun: thordarson.is