1. kafli – Nafn og markmið

1. gr.

Samtökin heita Samband íslenskra framhaldsskólanema, skammstafað SÍF.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr.
Samband íslenskra framhaldsskólanema eru hagsmunasamtök framhaldsskólanema á Íslandi. Það getur í umboði einstakra aðildarfélaga, sumra þeirra eða allra, farið með samningsumboð og komið fram fyrir þeirra hönd gagnvart stjórnvöldum, atvinnurekendum, skólastjórnendum eða öðrum aðilum.
Samband íslenskra framhaldsskólanema starfar samkvæmt stefnuskrá sem mótuð er árlega á aðalþingi félagsins.


Hönnun: thordarson.is