Hlutverk og stefnuskrá
SÍF er Samband íslenskra framhaldsskólanema. Meginmarkmið sambandsins er að gæta að og standa vörð um hagsmuni og mannréttindi nemenda á framhaldsskólastigi.
Hlutverk SÍF eru að:
- Verja réttindi framhaldsskólanema
- Hafa forystu í hagsmunamálum framhaldsskólanema
- Vera málsvari og milliliður í ágreiningsmálum
- Vera upplýsandi um hvað standi nemum til boða sem og um kjaramál nemenda í skóla og á vinnumarkaði
- Hafa forystu í félagsstarfi og félagsmálafræðslu
- Vera leiðandi í upplýsingagjöf um nám á framhaldsskólastigi
- Styðja við bakið á aðildarfélögum sínum
- Standa vörð um gæði náms
- Stuðla að jöfnu aðgengi til náms
- Vera sameiginlegur grundvöllur fyrir framhaldsskólanema til að koma saman og ræða stöðu sína og tengd málefni
Markmið SÍF eru að:
- Gæta hagsmuna og réttinda framhaldsskólanema, stuðla að bættri menntun og jöfnu aðgengi til náms
- Styrkja rödd ungs fólks í baráttu fyrir bættum kjörum framhaldsskólanema
- Styðja við bakið á aðildarfélögum sínum í baráttumálum þeirra
- Að fá réttindayfirlýsingu framhaldsskólanema virta af yfirvöldum í menntamálum
- Halda úti opinni skrifstofu og virkri upplýsingaveitu
- Styðja og efla framhaldsskólanema í félagsstarfi þeirra og stuðla að auknum þroska
- Vinna markvisst gegn fordómum í iðnnámi
- Virkja Sífara
Stefna SÍF er að:
- Fylgja réttindayfirlýsingu OBESSU
- Vera ein rödd framhaldsskólanema og efla samstarf við Mennta- og menningarmálaráðuneytið
- Vera sýnileg almenningi og framhaldsskólanemendum
- Tryggja þátttöku nema í mótun skólastarfs
- Efla jákvæða umfjöllun um framhaldsskólanemendur og ungt fólk almennt
- Leggja áherslu á innanlandsmál