Fundaraðstaða

Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík

Hitt húsið

Samband íslenskra framhaldsskólanema leigir skrifstofuaðstöðu í Hinu Húsinu, Reykjavík (sjá mynd).

Skrifstofan er á 1.hæð en gengið er inn um aðaldyrnar þar sem starfsfólk upplýsingarmiðstöðvar Hins Hússins gefa frekari leiðbeiningar um staðsetningu skrifstofu SÍF.

Fundaraðstaða

Aðildarfélög SÍF geta nýtt sér fundaraðstöðu í Hinu Húsinu endurgjaldslaust. Ýmsir kostir eru í boði en aðstaðan hentar vel jafnt fyrir fámenna stjórnarfundi eða fjölmenn námskeið. Starfsmenn SÍF eru alltaf tilbúnir til að hjálpa við skipulag eða stjórn funda. Hér fyrir neðan má fræðast um þær aðstöður sem eru í boði.

Skrifstofa SÍF

Fundaraðstaða fyrir allt að 8 manns. Nettenging, innstungur, tússtafla, sófar og heitt á könnunni.

Dómssalurinn

68m2 rými á þriðju hæð hússins. Þar er lítið eldhús með helstu tækjum og borðbúnaði, auk borða og stóla fyrir um 30-40 manns.

Fundarherbergi 2.hæð

Tekur um 20-25 manns. Þar er hægt að halda fundi og fyrirlestra. Í fundarherberginu er sýningartjald, stór tússtafla og flettitafla.

Kjallarinn

Í kjallaranum er góð aðstaða fyrir tónleikahald og ýmiskonar uppákomur. Stórt, opið svæði, stórt eldhús, borð og stólar fyrir stóra hópa af fólki.

Frekari upplýsingar fást hjá starfsmönnum SÍF. Panta þarf með minnst viku fyrirvara.


Hönnun: thordarson.is