Bókasala
Bóksala SÍF er starfrækt í byrjun hverrar annar. Staðsetning bóksölunnar er breytileg og opnunartímar einnig. Það er því auglýst hverju sinni hvar bóksala næsta árs verður staðsett.
Bóksalan er með því sniði að þú kemur með bækurnar þínar í umboðssölu til okkar og við gerum okkar besta til að selja þær fyrir þig. Þú færð síðan greitt í beinhörðum peningum að sölu lokinni.
Einnig erum við með frábært úrval af bókum og námsgögnum á góðu verði. Meðal annars sértækar bækur fyrir iðnnám sem finnast hvergi annarsstaðar. Svo endilega hafðu augun opin fyrir næstu önn, því þetta gæti sparað þér skildinginn.