Hvað er SÍF?
Samband íslenskra framhaldsskólanema var stofnað árið 2007 en Félag framhaldsskólanema hafði þá liðið undir lok nokkrum árum áður. Hagsmunafélag framhaldsskólanema var stofnað í kjölfar þess að lagt var fram lagafrumvarp um að stytta framhaldsskólanám í þrjú ár í stað fjögurra. Til að öðlast sterkari stöðu var Iðnnemasamband Íslands og Hagsmunafélag framhaldsskólanema sameinað og myndaði þar með Samband íslenskra framhaldsskólanema, skammstafað SÍF.
SÍF náði markmiði sínu og var frumvarpið fellt en allt frá upphafi hefur sambandið verið í góðu samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneyti og er enn. Það veitir félaginu gott tækifæri til að taka þátt í málefnum strax í undirbúningsferlinu og hafa áhrif á framvindu þeirra.
Verkefni SÍF eru mismunandi ár frá ári. Aðalþing er þó alltaf haldið árlega. Aðalþingið er æðsta vald félagsins og eru teknar ákvarðanir með atkvæðagreiðslu þar sem fulltrúar frá öllum aðildarfélögum eiga atkvæði, auk þess sem stefna og markmið félagsins eru mótuð, lögin endurskoðuð o.s.frv.
Stjórnarfundir eru einnig haldnir reglulega, einn eða fleiri á hverri önn. Stjórnin samanstendur meðal annars af SÍFörum (einn frá hverjum skóla) og eiga því öll aðildarfélögin sæti þar. Þar eru teknar þær ákvarðanir sem þarf að taka hverju sinni og öðlast þær gildi til næsta aðalþings þar sem þær eru samþykktar eða felldar.
SÍF er með þjónustusamning við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og gegnir þar ákveðnum skyldum. Þjónustusamningurinn gerir sambandinu kleift að halda úti skrifstofu og starfsmanni og sjá þannig um þjónustu við námsmenn sem þess þurfa. Einnig mæta fulltrúar SÍF reglulega á fundi á vegum ráðuneytisins, eiga sæti í HOFF (Heilsu og forvarnarefling í framhaldsskólum) og LÍN (Lánasjóður íslenskra námsmanna) sem og fá tækifæri til að taka þátt í þeim ákvörðunum er snerta framhaldsskólanema og þeirra menntun.
SÍF tekur einnig þátt í málefnum utan landssteinanna en sambandið á aðild að OBESSU (The organizing bureau of European school student unions) einskonar regnhlífasamtökum hagsmunafélaga námsmanna í Evrópu. Fulltrúum SÍF er boðið út til að taka þátt í ráðstefnum og aðalþingi samtakanna. Þar er unnið að verðugum málefnum sem viðkoma öllum nemendum í Evrópu. Þar gefst góður samráðsvettvangur þar sem margt má læra og samstaðan veitir okkur mikinn stuðning. Aðildarfélög OBESSU vinna saman að réttindayfirlýsingu sem kallast Light on the rights en útfrá henni vinnur SÍF að herferðinni Kveikjum á perunni!