Aðalþing 2010

Aðalþing SÍF 17-19. sept 2010

Föstudagur, 17. september 2010
17:11 Fundur settur

Þorkell Einarson formaður félagsins setur þing SÍF 2010, og flytur opnunarræðu.

Hreiðar Már Árnason, framkvæmdastjóri Síf, flytur ræðu um kjól og kjörbréf. Hreiðar kynnir formsatriði og kosningu þingritara

  • 33 mættir. Vantar 15!
  • Framboð í hvatningarnefnd. Sindri Snær Einarsson og Þorkell bjóða sig fram og standa upp
  • Heiða vill spurningu. Fundurinn er löglegur.

1. og 2. þingforseti kosinn.

  • Hreiðar útskýrir stöðu þingforseta. Hreiðar og Stefán Rafn Sigurbjörnsson bjóða sig fram og eru samþykktir af fundinum

1., 2. og 3. þingritari kjörnir

  • Viktor Orri Valgarðsson, Arnór Bjarki Svarfdal og Heiða Karen Bergmann Sæbergsdóttir bjóða sig fram og eru kosin.

Hreiðar kynnir stöður framkvæmdarstjórnar. Nefnir væntanlegar lagabreytingatillögur um breytingu á stjórnarfyrirkomulagi.

Heiða Karen fer yfir skýrslu framkvæmdarstjórnar. Skýrsla framkvæmdarstjórnar er meðfylgjandi.

Hreiðar kynnir stuðningshóp AmEvents sem mun koma meira að skipulagi Söngkeppninnar.

Hreiðar kynnir fundarsköp og fyrirkomulag fundarins.

Sindri biður um orðið og fær það. Minnir á númer hvers og eins til að koma sér á mælendaskrá.

  • Rætt að fulltrúar sem leysa aðra af munu fá eigin gögn og nafn á mælendaskrá á morgun.

Hreiðar fer yfir dagskrá þingsins sem er meðfylgjandi.

  • Fer einnig yfir fundargögn, lagabreytingar og vinnuhópa. Tilkynnt hvernig koma skal með lagabreytingatillögu.
  • Spurt hvenær breytingar þurfi að koma inn. Hreiðar svarar, áður en þingið hefst á sunnudag.
  • Skýrir möguleikann á að leggja fram breytingu á breytingartillögu.

Beðið um að fá fjárhagsskýrslu síðustu stjórnar í möppuna

  • Hreiðar segir að á síðasta þingi hafi rangur ársreikningur verið lagður fram. Þar með þurfi fyrst að samþykkja ársreikning þarsíðasta árs og eftir það sé hægt að koma fram með nýjan ársreikning
  • Hann bendir þó á að bókhaldið sé þeim öllum opið og að hann muni kynna stöðu félagsins sem best hann má. Þó sundurgreindur ársreikningur muni ekki liggja fyrir verður farið yfir stöðu félagsins og uppgjör bóksölunnar.

Hreiðar minnir á að spyrja megi að vild út í fjárhag og starfsmannaskipti félagsins

  • Biður þá sem óskuðu gistingar að ræða við sig
  • Hreiðar frestar þinginu fram til morgundags

Laugardagur, 18. september 2010

10:30 Stefán Rafn 1. þingforseti setur þingið og kynnir dagskrá fundarins

Hópastarf

  1. 1. Lagabreytingarnefnd ræðir lög Síf, lagabreytingatillögur og form laga, tillögur lagðar fyrir þingið Margrét umsjónarmaður í matsalnum
  2. 2. Markmið og skipulag Síf ræðir hver markmið félagsins séu og hvernig skipuleggja skal starfið (duh) ?orkell og Heiða umsjónarmenn í hátíðarsalnum
  3. 3. Kynningarstarfsemi Síf ræðir hvernig best sé hægt að kynna Síf og starf þess fyrir almenningi og menntaskólanemum Eydís umsjónarmaður á neðstu hæð
  4. 4. Hvað getum við gert? Samráðsgrundvöllur fulltrúa um þau vandamál sem steðja að framhaldsskólanemum í dag og hvað hægt er að gera við þeim Atli og Auður umsjónarmenn á efstu hæð

Fólki er frjálst að skrá sig hjá Eydísi í þá hópa sem það vill starfa innan en aðeins mega 11 manns sitja í hverjum hópi

10:45 Hópastarf hefst

11:27 hópavinnu lýkur, Hreiðar í pontu.

  • Allar tillögur þarf að senda í kvöld
  • Á morgun verður farið yfir afrakstur hópavinnu
  • Talar um ferli við að breyta tillögunum og samþykkja ályktanirnar
  • Auglýsir þinghófið í sal Flugvirkjafélagsins í Borgartúni 22 klukkan 19:30. Veigar ekki skaffaðar en þó velkomnar. Ávítur vegna snyrtimennsku.

Ávarp hvatninganefndar. Sindri og Þorkell hvetja fólk til að koma til tals við sig og segja frá starfi nefndarinnar.

Fundi frestað.

Sunnudagur, 19. september 2010

12:23 Stefán opnar þingfund á ný (klukkutíma og 23 mín of seint)

  • Kynnir mælendaskrá, þ.e. bláu blöðin
  • Kynnir dagskrá. Hópar kynna niðurstöður sínar, nema lagabreytingahópur, sem gerir það í sérstökum dagskrárliði. Breytingartillögur við ályktanir skilist til þingritara

Atli og Auður kynna starf hópsins „Hvað getum við gert?“

  • Atli talar um ÍMYND framhaldsskólanema, neikvæð ímynd er áberandi í kerfinu. SÍF þyrfti að beita sér í baráttu við það og vekja athygli á sér, t.d. með greinum í blöðin, heimsóknum í framhaldsskóla, lifandi vefsíðu. Aðalverkefni SIF í vetur og gæti fallið undir sérstakan vinnuhóp eða embættismann
  • HVERFASKIPTING – hefur valdið ótta nemenda við að sækja um skóla að eigin vali og heftir frelsi skóla og nemenda. Breyta þarf skráningarkerfinu
  • ÁBYRGÐ skólameistara gagnvart nemendafélögum. Sumir hafa lent í útistöðum við skólastjóra. Skilgreina þarf ábyrgð og hlutverk skólameistara gagnvart nemendafélögum. Dreifa þarf ábyrgð á fleiri, t.d. með skólaráði
  • Auður – ÁFENGISMÆLAR – vera má að þurfi að bæta jafningja- og foringjafræðslu í stað notkunar áfengismæla. SÍF mælir gegn notkun mælanna á böllum og segir reglur um þá óljósar. Skjal lagt fram með tillögu að reglum v/ áfengismæla. Eydís mælir gegn því að álykta um áfengismæla. Eva Brá vill nota jákvæða sálfræði og hvatningu fyrir allsgáða nemendur í stað þess að drukknir fari á svartan lista.
  • Djamm full eða edrú er ekki málefni SÍF segir Magga og bendir á að notkun mælanna sé fjölbreytt og við höfum enga heildarsýn. Auður sammælist Evu um jákvæðar aðgerðir. Atli bendir á að ekki sé tekin afstaða um áfengi, heldur áfengismæla sem gallagripi, vill halda í ályktunina. Heiða styður að SÍF álykti um að reglur verði skýrðar um áfengismæla, ekkert flóknara.
  • Breytingartillaga Heiðu: Kaflinn um áfengismælana verði tekinn út og í staðinn komi ákvæði um að skýra þurfi reglur um áfengismæla.
  • Breytingartillaga Eydísar: SÍF er ekki ánægt með “notkun áfengismæla eins og þeir eru notaðir núna”, í stað “notkun þeirra almennt”. Vill fella út tillögu að reglugerð. Máli frestað

Fulltrúi Menntaskólans á Tröllaskaga (Birgitta, formaður) kynnir skólann og mælir fyrir aðild nemendafélagsins að SÍF

  • Skólinn er nýr, staddur á Ólafsfirði
  • Fjölbrautarkerfi, nýjar aðferðir án bóka
  • Opnar fyrir spurningar – engar spurningar berast
  • Heildaratkvæðafjöldi telst 38, og allir kjósa með aðild MT að SÍF

12:52 Fyrsti þingritari mætir til leiks, alltof seint

38 atkvæði

Aðild Menntaskólans á Tröllaskaga samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta

  • Atkvæði þeirra bætist við, 39 atkvæði

Breytingartillögur lagðar fram um áfengismæla

  • Eitt atkvæði bætist við, 40 atkvæði
  • Eydís dregur breytingartillögu sína til baka, kosið um breytingartillögu Heiðu
  • “Síf telur nauðsynlegt að skýrar reglur verði settar um notkun og beitingu áfengismæla til að útkljá ágreiningsmál”
  • 29 fylgjandi, 3 andvígir, samþykkt með yfignæfandi meirihluta

Umræða um áfengismæla heldur þó áfram

  • Vill að Síf leggi fram atkvæðagreiðslu um áfengisnotkun í menntaskólum almennt, hvað skal gera við ölvaða nemendur o.s.frv. Síf taki afstöðu til þess hvaða reglur skuli settar, ekki bara að settar séu reglur
  • Gunnar Þór tekur til máls, vill að Síf sé einnig hagsmunafélag fyrir nemendur sem drekka og ekki sé lögð fram ályktun um að ekki skuli drukkið á böllum
  • Heiða tekur til máls, telur málið of stórt til að ræða á þessum tímapunkti og leggur til að það verði tekið fyrir sérstaklega síðar, t.d. innan stjórnar
  • Sindri Már tekur til máls, telur Síf vera að samþykkja áfengismæla með áðursamþykktri ályktun, vill ekki gefa út ályktun um hvernig skuli nota þá því hann sé á móti notkun þeirra
  • Þingritari deilir fyndnum punktum úr fundargerð síðasta Aðalþings með þingfund, nokkrir þingfulltrúar flissa að óviðeigandi brandara
  • Þorbjörg Ásta leggur fram breytingartillögu við ályktun um áfengismæla, áfengismælum sé aðeins beitt á þá sem eru áberandi ölvaðir í dauðaherbergi
  • Háttvirtur þingforseti leggur til að grein um áfengismæla sé skotið til stjórnar
  • Samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta

13:16 Ályktunarpakki í heild sinni tekinn til atkvæðagreiðslu

  • Samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta, 6 atkvæði

Heiða, formaður hóps um markmið og skipulag Síf, tekur til máls

  • Les upp niðurstöður starfshópsins
  • Hæstvirtur þingforseti er kvaddur til þjónustu sem skilti
  • Lesturinn uppsker lófatak
  • Þorkell kveður sér hljóðs um niðurstöðurnar, telur vert að skoða að draga úr alþjóðastarfi Síf og einbeita sér að innanlandsstarfi

Heiða leggur í kjölfarið til viðbót við stefnuskrá Síf, “Lögð skal áhersla á innanlandsmál”

  • Samþykkt nánast einróma

Kosið um stefnuskrá um markmið og skipulag Síf í heild sinni

  • Einróma samþykkt

Eydís, formaður starfshóps um kynningu Síf tekur til máls

  • Les upp ályktun starfshóps um skemmtilegar leiðir til kynningar
  • Henni finnst Jón Gnarr skemmtilegur
  • Dynjandi lófatak
  • Þorkell kveður sér aftur hljóðs (athyglissjúkur maður), spyr um hvaðan peningar til rútuaksturs o.s.frv. muni koma
  • Eydís segir fjáröflun muni verða á könnu sérstaks vinnuhóps á vegum Síf
  • Heiða spyr hvort lögð sé fram bindandi tillaga
  • Stefán og Eydís telja tillögurnar leiðbeinandi en ekki bindandi
  • Orðinu “plani” breytt í “hugmynd”

Kynningarpakkinn tekinn til atkvæðagreiðslu

  • Samþykktur með geysilegum meirihluta

Eydís tekur til máls og kynnir verkefnið “Columbian Students’ watch”

  • Tengslanet við nemendur í Kólumbíu sem fulltrúar Síf sóttu ásamt öðrum evrópskum samböndum menntaskólanema
  • Tugir þúsunda kólumbískra menntaskólanema myrtir, pyntaðir og rænt síðustu áratugi
  • Lagt til að Síf gangi í tengslanetið og leggi nafn sitt við mótmæli stúdentafélaga þegar réttindi kólumbískra nemenda eru brotin
  • Stefán Snær tekur til máls, þrumandi Morfísræða um að þetta brjóti í bága við ákvæði um að einbeita sér að innanlandsmálum
  • Níels tekur til máls og telur hagsmunasamtök íslenskra framhaldsskólanema eiga að einbeita sér að innanlandsmálum
  • Atli tekur til máls, bendir á hversu lítil vinna þetta er fyrir Síf
  • Unnur spyr hvers vegna þetta skipti þá máli
  • Þingriturum er gersamlega misboðið og hneykslast á málflutningi og sálarleysi ákveðinna aðila í lágum hljóðum
  • Heiða spyr hvort að við séum ekki þátttakendur í samfélaginu og leggur áherslu á að Síf þurfi ekki að leggja vinnu í þetta
  • Þorbjörgu Ástu finnst ekkert mál að skrifa undir þetta en finnst of miklum tíma hafa verið eytt í þetta nú þegar
  • Sindri Már leggur til að málinu verði vísað til stjórnar og hætt sé að eyða tíma í að ræða málið
  • Gunnar telur að málið sé fordæmisgefandi, aðrir aðilar gætu haldið að Síf hjálpi fólki
  • Helga telur sjálfsagt mál að eyða örlitlum tíma í að hjálpa deyjandi fólki
  • Eydís tekur til máls og veltir fyrir sér hvort aðrir muni hjálpa ef Síf hjálpar ekki

Kosið um hvort að Síf taki þátt í Columbian Students’ Watch

  • 26 samþykkja, 7 mótfallnir
  • Tillagan telst samþykkt

Hreiðar kynnir fjárhagsskýrslu félagsins

  • Róteringar á skrifstofu, mishæfir einstaklingar störfuðu fyrir Síf
  • Á síðasta ársþingi var ársreikningur lagður fyrir hálfkláraður
  • Verður að samþykkja ársreikning 2008-2009 áður en ársreikningur 2009-2010 er samþykktur
  • Fjölgun nemenda jók tekjur vegna aðildargjalda, aðildargjöld ekki innheimt á seinni önn 2008-2009
  • Þjónustusamningur við Lín, styrkir frá Lýðheilsustöð og Lín fyrir forvarnarfræðslu og forvarnardegi Síf o.s.frv. teljast einnig til tekna
  • Starfstími framkvæmdastjóra skaraðist og jók launakostnað
  • Fjárfest í fartölvu
  • Bóksala Síf 2008-2009 óvenju stór með góðri samvinnu við Tækniskólann, skilaði hagnaði
  • Kaffikostnaður máttarstólpi Síf
  • Nýtt bókhaldskerfi tekið í notkun 2008-2009
  • Ferðakostnaður Síf kemur alltaf út á núlli vegna þess að fulltrúar félagsins taka aðeins þátt í ráðstefnum sem kosta flug, gistingu og uppihald fulltrúa
  • Ekkert félagsblað gefið út 2008-2009
  • Guðlaugur spyr hvort veggspjöld séu plaköt, Hreiðar játar því
  • Mikill dráttarkostnaður vegna seinagangs við að greiða reikninga
  • Ársreikningur 2009-2010 tekinn fyrir í stjórn, sendur á nemendafélög og lagður fyrir á stjórnarfundi bráðum
  • Þjónustusamningur við menntamálaráðuneytið upp á 5,9 milljónir
  • Aðildargjöld líklega ekki innheimt í ár
  • Hreiðar Már skilgreinir sjálfan sig sem “peningagyðing”
  • Engar varanlegar skuldir, tímabundnar skuldir eins og leiga o.s.frv.
  • Takmarkið að koma út í hagnaði af Bóksölu Síf, tekst yfirleitt
  • Einnig að bjóða nemendum ódýrar bækur, sérstaklega iðnnemum

Ársskýrsla lögð til samþykktar

40 hafa kosningarétt

  • Hreiðar spyr hvort að þingfulltrúar séu einfrumungar
  • Einróma samþykkt (skýrslan, ekki spurningin um einfrumunga)

14:35 Hádegismatur áætlaður í hálftíma – 40 mínútur

15:28 Lagabreytingatillögur

41 atkvæði

Bjarnþór og Níels kynna niðurstöður lagabreytingarnefndar

  • 21. grein sé færð í 9. kafla og heiti hans breytt í “Kynning og fræðsla”
  • Alþjóðafulltrúi og forvarnarfulltrúi séu kosnir sérstaklega á aðalþingi
  • Færa til ákvæði um Sífara
  • Stytta ákvæði um kjör til framkvæmdastjórnar, 5-8 manns, formaður hafi oddaatkvæði
  • Fella út lög um aðildargjöld og fella gjöldin þannig niður

Hreiðar útskýrir komandi ferli með gríðarlegum flækjum og líkingu við Pacman

  • Farið verður í gegnum allar lagagreinar laga Síf frá fyrstu grein til þeirrar síðustu
  • Lagabreytingatillögur stjórnar og þings verða lagðar fram, kynntar og teknar til umræðu
  • Leggja má fram skriflegar breytingatillögur á breytingatillögum í umræðum
  • Kosið verður fyrst um breytingatillögur á breytingatillögunum
  • Síðan um breytingatillögurnar eins og þær þá standa

16:01 Lagabreytingatillögur – Kaflaheiti reyna að fara eftir upprunalegum númerum greina (þeirri röð sem þau voru tekin fyrir í) en núverandi númer greinanna eru innan sviga þar sem við á.

2.2. grein

  • Stjórn Síf leggur til að greininni verði breytt í að Síf starfi eftir stefnuskrá sambandsins
  • Lagabreytinganefnd er ósammála þessu
  • Eydís, stefnuskrá er opinbert skjal félagsins sem hefur ekkert gildi ef það hefur ekki grundvöll í lögum
  • Bjarnþór telur að lögin þurfi að innihalda þann grundvöll sem í þeim eru
  • Jakob leggur til að grein stjórnarinnar verði bætt við í stað þess að taka aðra þeirra út
  • Heiða er sammála því, segir önnur sambærileg félög hafa stefnuskrá og þau þurfi að vinna eftir þeim
  • Jakob leggur fram breytingatillögu um að sameina ákvæðin sem er samþykkt með meirihluta atkvæða

3. og 4. grein

  • Stjórn Síf leggur til að þær séu teknar út en lagabreytinganefndin er ósammála því
  • Heiða útskýrir að pælingin sé að greinarnar fari inn í stefnuskrá frekar en lög Síf
  • Eydís tekur undir það
  • Kosið um hverjir eru hlynntir því að taka þessar greinar út
  • Yfirgnæfandi meirihluti (allir?) er hlynntur því og enginn mótfallinn

5. grein (núverandi 3. og 4. grein)

  • Stjórn Síf leggur til að henni verði skipt upp í (núverandi) 3. og 4. grein
  • Lagabreytinganefnd var ósammála því en dregur þau andmæli til baka þar sem þau voru byggð á misskilningi
  • Breytingatillaga stjórnar samþykkt
  • Heiða útskýrir að greininni sé aðeins skipt upp með endurorðun
  • Eydís leggur til breytingatillögu þar sem aðildagjöld eru tekin út úr greininni
  • Einróma samþykkt

6. grein (núverandi 5. grein)

  • Orðalagsbreyting stjórnar lögð fram
  • Þorkell leggur fram breytingartillögu um að stjórnarfundur samþykki aðild nýrra nemendafélaga frekar en aðalþing Síf
  • Breytir þeirri breytingatillögu á breytingatillögunni í að aðalþing geti einnig gert það
  • Kosið um tillögu Þorkels
  • Einróma samþykkt

8. grein (núverandi 7. grein)

  • Orðalagsbreyting sem er samþykkt einróma

9. grein (núverandi 8. grein)

  • Jakob fer fram á að innsláttar/stafsetningarvilla verði leiðrétt
  • Það er ekki tekið fyrir á aðalþingi þar sem framkvæmdastjórn er heimilt að laga slíkt

10. grein (núverandi 9. grein)

  • Stjórn Síf leggur til að stjórnin geti kosið arftaka sinn ef félag segir sig úr Síf
  • Heiða mælir með tillögunni
  • Þorkell vill ekki að einstaklingar úr skólum sem hafa sagt sig úr félaginu geti setið í stjórn
  • Heiða segir að framkvæmdastjórn eigi ekki að vera fulltrúar síns skóla, heldur allra menntaskólanemenda, stjórnin sé hins vegar skipuð fulltrúum skólanna
  • Þorkell spyr hvort að hver sem er geti þá boðið sig fram til embættis þar sem aðildagjöld eru ekki lengur forsenda einstaklingsaðildar
  • Hreiðar og Viktor útskýra að umsókn hans þurfi að vera samþykkt af framkvæmdastjórn og hann kjörinn á aðalþingi Síf
  • Eydís legggur til breytingartillögu  á tillögunni frá stjórninni. Sem er svo hljóðandi: “ Ef um er að ræða framkvæmdastjórnarmeðlim skal honum gefið svigrúm til að haldastöðu sinni, sem einstaklingur“
  • Forseti óskar eftir að atkvæði atkvæðisbærra fulltrúa séu endurtalin vegna þess að hreyfing var á fólki. Inni í salnum eru 42
  • Gengið er til kosninga um breytingartillögu Eydísar
  • Tillagan er samþykkt

21.grein

  • Stjórn Síf leggur til að þetta kynningarhlutverk verði í verkahring Sífara og greinin tekin út
  • Heiða útskýrir breytingartillöguna
  • Tillagan er samþykkt einróma

22. grein (núverandi 20. grein)

  • Orðalagsbreytingar tengdar breytingu á hlutverki Sífara lagðar til
  • Tillagan er samþykkt

23. grein (núverandi 21. grein)

  • Stjórn Síf leggur til að svar við kalli berist 14 dögum fyrir aðalþing en kjörbréf fyllt út á þingstað
  • Tillagan er samþykkt

24. grein (núverandi 22. grein) a)

  • Öll umræða um þessa grein og tillögur henni tengdar er gríðarlega ruglingsleg, enginn virðist vita hver er að leggja hvað til og málið er geigvænlega óskýrt
  • Stjórn Síf lagði til að taka út gjaldkera en að 5-7 stöður yrðu allar kjörnar á aðalþingi Síf og stjórnin gæti skipt með sér verkum, t.d. varðandi hvort að stjórnin hafi gjaldkera
  • Lagabreytinganefnd vill að kjörið sé sérstaklega í stöður formanns, varaformanns, gjaldkera, alþjóðafulltrúa og forvarnarfulltrúa
  • Heiða segist til í að draga til baka tillögur stjórnarinnar að breytingum á skipan framkvæmdastjórnarinnar
  • Eydís útskýrir að stjórnin telji stöðu gjaldkera ekki hafa virkað og vill að framkvæmdastjóri Síf sjái um hlutverk hans
  • Stjórn Síf dregur tillögu sína (sem var flestum óljós) til baka
  • Atli bendir á að ef kosið er sérstaklega í allar stöður verði að berast framboð í þau öll frekar en að sú ákvörðun verði tekin innan nýkjörinnar stjórnar síðar
  • Heiða leggur til að kosið verði sérstaklega í allar þessar stöður á aðalþingi Síf en vill þó að núverandi aðalþing starfi eftir núverandi lögum og kosið verði í þessi embætti á næsta stjórnarfundi
  • Eydís er sammála þessu en finnst skrítið að kjósa í allar stöður nema til verkefnastjóra
  • Heiða leggur fram breytingartillögu þess efnis að kosið verði í allar stöður framkvæmdastjórnar á aðalþingi Síf
  • Yfirgnæfandi meirihluti samþykkir tillöguna

24. grein (núverandi 22.grein) b)

  • Stjórn leggur til að ákvæði um hlutverk Sífara verði færð og greinin kveði á um hverjir eiga sæti í stjórn Síf
  • Þorkell leggur fram breytingartillögu um að tveimur verkefnastjórum sé bætt við þann lista
  • Tillagan er samþykkt

24. grein (núverandi 22.grein) c)

  • Tillaga lagabreytingarnefndar um að fella út hluta greinarinnar samþykkt

24. grein (núverandi 22.grein) d)

  • Samþykkt að fella d-lið greinarinnar út

24. grein (núverandi 22.grein) e)

  • Stjórn Síf leggur til að hver sem er megi bjóða sig fram í ráðgjafarnefnd
  • Tillagan er samþykkt

25. grein fellur út vegna tæknilegra atriða, þegar er búið að kveða á um kjör varamanna til framkvæmdastjórnar Síf í lögum Síf. Þó fellur þar með einnig út úr lögunum ákvæði um að atkvæðamagn ráði röð varamanna og að hlutverk þeirra sé að taka sæti aðalmanna á stjórnarfundum í forföllum.

27. grein (núverandi 24. grein)

  • Stjórn Síf leggur fram tillögu um að leitast skuli við að tryggja áhrif framhaldsskólanema í framkvæmdastjórn Síf
  • Jakob leggur fram að þess í stað verði kveðið á um að framhaldsskólanemar skuli vera í meirihluta í framkvæmdastjórn Síf
  • Tillaga Jakobs er samþykkt

17:22 Þingforseti leggur til að gert verði 5 mínútna kaffihlé á fundinum

  • Tillagan er samþykkt með 23 atkvæðum gegn 17
  • Þessi atkvæðagreiðsla er mest spennandi og tvísýna atkvæðagreiðslan sem fram fer á þinginu

17:33 Þingfundur settur á nýjan leik

  • FSU-ingur var svo fullur í gær að hann man ekki hver fékk margarítufötuna sína
  • Það var Arnór Bjarki og hann virðist ekki ætla að lýsa eignarhaldi sínu á hana

40 atkvæði

25. grein

  • Breytingartillaga frá stjórn sem áréttar tilhagan skipunar í stjórn samþykkt

31. grein

  • Stjórn leggur til að greinin verði felld úr lögunum og að framkvæmdastjórn megi ráða starfsmann án samráðs við stjórn
  • Lagabreytinganefnd dregur andmæli sín til baka
  • Tillaga stjórnar er samþykkt

32. grein og 34. grein c) og f)

  • Lagabreytinganefnd leggur til að seinni hluti greinar 32. verði felldur burt til samræmingar
  • Stjórn dregur til baka breytingartillögur á 34. grein liðum c) og f) vegna samræmis við aðrar greinar

34. grein d)

  • Stjórn leggur til að seinni hluti greinar með ítarlegri lýsingu verði felldur út
  • Tillagan er samþykkt

39. grein

  • Stjórn leggur til að greinin verði felld burt
  • Tillagan er samþykkt

37. grein

  • Stjórn leggur til nýja grein um Sífara sem er samþykkt

38. grein

  • Stjórn leggur til grein um lýðræðislega kosningu Sífara innan skóla
  • Lagabreytinganefnd er á móti því og vill að nemendafélög ráði sjálf hvernig Sífarar eru valdir
  • Heiða segir að Síf vilji að nemendafélög stundi lýðræðisleg vinnubrögð
  • Heiða telur þetta tryggja að Sífarar verði sérstakt embætti innan nemendafélaga
  • Hreiðar leggur til að tekið sé fram að Síf vænti þess að Sífarar séu lýðræðislega kjörnir en fari ekki fram á það
  • Stefán Snær leggur fram breytingartillögu þess efnis með liðsinni Arnórs Bjarka
  • Kosið er um breytingartillöguna sem er samþykkt einróma

39. grein samþykkt

40. grein samþykkt

41. grein

  • Þorkell leggur til að seinni hluti greinarinnar sé felldur brott til samræmis
  • Tillagan er einróma samþykkt

42. grein samþykkt einróma

43. grein

  • Atli útskýrir að gott sé að ráðgjafarnefnd leiðbeini framkvæmdastjórn í upphafi
  • Tillagan er einróma samþykkt

44. grein

  • Eydís útskýrir að í greininni sé verið að árétta réttindi ráðgjafa
  • Tillagan er samþykkt einróma

40. grein – 42. grein

  • Lagabreytinganefnd leggur til að aðildargjöld Síf séu felld niður og að allar þessar greinar séu felldar brott
  • Atli segir að aðildargjöldin hafi verið fyrirstaða fyrir inngöngu annarra skóla
  • Jakob er sammála því og bætir við að það sé ekki einungis fyrirstaða heldur einnig yfirvarp og afsökun
  • Hreiðar tekur undir þetta en bendir á að aðildargjöldin hafi verið innheimt einu sinni á síðustu tveimur árum og segir að félagið treysti sér til þess að starfa áfram án aðildargjalda
  • Tillögurnar þrjár eru einróma samþykktar undir dynjandi lófataki og fagnaðarlátum viðstaddra

48. grein

  • Stjórn lagði til að greinin yrði felld út og staða gjaldkera felld niður en það hefur áður verið afgreitt
  • Þorkell leggur til að greinin verði áfram inni
  • Í ljós kemur að um er að ræða endurskoðanda en ekki gjaldkera
  • Allir draga tillögur sínar til baka og því er ekki kosið um greinina og hún tekur ekki gildi

44. grein (núverandi 46. grein)

  • Heiða leggur til að reikningsár félagsins sé samræmt við reikningsár flestra annarra félagasamtaka eins og Hreiðar lýsti því í umræðu um ársreikninga félagsins
  • Lagt er til að reikingsárið verði 1. september – 31. ágúst
  • Tillagan er einróma samþykkt

46. grein (núverandi 48. grein)

  • Stjórn leggur til að seinni hluti greinarinnar verði felldur út og að kosið verði í stöður framkvæmdastjórnar samkvæmt nýjum lögum strax en ekki að ári liðnu
  • Hreiðar tekur undir þá tillögu vegna þess að margt geti breyst á einu ári
  • Tillagan er einróma samþykkt

49. grein (núverandi 51. grein)

  • Greinin fjallar um gildistöku nýrra laga Síf
  • Því er í raun verið að kjósa um lögin í heild sinni með þessari grein
  • Greinin og lög Síf eru einróma samþykkt með dynjandi lófataki

18:12 Ný lög Síf samþykkt

Hreiðar tekur til máls og leggur til atkvæðagreiðslu um hvort fjöldi aðalmanna í stjórn Síf skuli vera 5, 6, 7 eða 8 á komandi starfsári Síf

  • Honum er bent á að hann hafi verið að misskilja ákvæðið og að 8 fulltrúar séu kjörnir ef næg framboð berast þess efnis
  • Útskýrt að formaður framkvæmdastjórnar Síf sé kjörinn fyrst, síðan ritari, gjaldkeri, forvarnarfulltrúi, alþjóðafulltrúi og tveir verkefnastjórar
  • Þannig geti sá sem t.d. ekki nær kjöri sem formaður boðið sig fram í önnur embætti
  • Fulltrúar geta boðið sig fram til eins margra embætta og þeim sýnist
  • Framboðum er skilað skriflega til Sindra Snæs í kaffihlénu en þeir sem vilja bjóða sig fram aftur þurfa að gera það opinberlega meðan á kjöri stendur

18:20 Þinghlé

18:48 Þingfundur settur að nýju

Sindri Snær, formaður hvatningarnefndar, er á klósettinu og ekki þykir ljóst hvort hann er að kúka eða pissa

  • Hann fullyrðir að hann hafi verið að pissa og kynnir framboð
  • Sjálfkjörið er í öll embætti nema gjaldkera eins og er
  • Mótframboð geta enn borist
  • 2 mínútna framboðsræður frambjóðenda í boði

Heiða Karen Sæbergsdóttir býður sig fram til formanns og tekur til máls

  • Var verkefnastjóri Síf á liðnu ári, 18 ára frá Stykkishólmi á Snæfellsnesi nálægt Grundarfirði
  • Útskrifast úr FB í vor ef allt gengur eftir af félagsfræða- og málabraut og hefur tekið þátt í félagsstörfum
  • Þykir vænt um Síf og vill sjá til þess að starfsemin haldi áfram, verði kröftugt og markmiðunum náð
  • Þakkar fyrir sig

Mælendaskrá opin

  • Hreiðar mælir með öllum frambjóðendum
  • Eydís mælir með Heiðu Kareni, elskar hana víst en þó ekki á kynferðislegan hátt
  • Atli lýsir því að Heiða sé skipulögð og kúl
  • Þorkell veit ekki hvar Síf væri án Heiðu Karenar, slíkan metnað og dugnað hefur hann víst sjaldan séð
  • Heiða Karen “kjörin” formaður Síf 2010-2011 með lófataki

Þorbjörg Ásta Leifsdóttir býður sig fram til varaformanns og tekur til máls

  • 19 ára, Kvennó, félagsstörf síðan í 10. bekk, stjórn í Kvennó, formaður unglingadeildar Hundaræktarfélags Íslands
  • Atli spyr hvort hún hafi nægan tíma til að starfa fyrir Síf og Þorbjörg svarar játandi
  • Fulltrúi spyr hvort eyða eigi miklum tíma í hvern og einn og því er ákveðið að “ganga til kosninga”
  • Þorbjörg Ásta samþykkt með lófataki

Jóhann úr VMA og Níels úr FG bjóða sig fram til gjaldkera

  • Jóhann er 20 ára og hefur mikinn áhuga á að vinna með Síf og taka þátt ístarfinu
  • Gjaldkeri Nemendafélags VMA og hefur að eigin sögn sinnt því mjög vel
  • Stúdent í viðskipta- og hagfræði og hefur reynslu af fjármálum, 12 einingar í bókhaldi
  • Í starfsnámi sem húsgagnasmiður, fulltrúi iðnnema
  • Níels ávarpar m.a. námsmenn í Kólumbíu, ættaður frá Nesskaupsstað en býr á ?lftanesi
  • Meðlimur Málfundafélagsins í NFFG og hefur aðstoðað fjármálastjóra NFFG
  • Vill taka fullan þátt í starfinu og þakkar fyrir sig, skemmtilegt þing og ágætar lagabreytingar

Mælendaskrá opin

  • Stefán Snær mælir með Níels, skipulagður og stutt í grínið, fær nótu og kvittun fyrir öllu sem hann kaupir, einstaklega ljúfur og með brennandi áhuga á að bæta félagið, spyr hvernig Jóhann ætli að samræma starfið við gjaldkerastöðu sína í VMA
  • Eydís spyr Jóhann hvort hann telji sér fært að mæta á framkvæmdastjórnarfundi í Rvk
  • Jóhann telur gjaldkerastörf nemendafélags VMA og framkvæmdastjórnar Síf vera sambærileg, hið fyrrnefnda ekki mjög tímafrek staða
  • Jóhann svarar að hann sé tilbúinn til þess og vill opna á að fleiri utan af landi bjóði sig fram til framkvæmdastjórnar Síf
  • Margrét segir að gjaldkeri sé skásta staðan til að sinna utan af landi og finnst gott hjá Jóhanni að bjóða sig fram, finnst gott að hafa fulltrúa iðnnema í framkvæmdastjórninni og lýsir yfir stuðningi við hann
  • Hreiðar bendir á að í framkvæmdastjórn Síf hafi enginn setið svona langt utan af landi en telur að það sé vel gerlegt en lýsir yfir stuðningi við hvorugan frambjóðanda

19:09 Kjörið í stöðu gjaldkera með leynilegri atkvæðagreiðslu

Sindri Snær leggur til að þingritarar sjái um talningu ásamt tveimur vottunarmönnum, hvor frambjóðandi skipar einn vottunarmann að tillögu fyrsta þingritara og Sindra Snæs.

19:12 Eva Brá kynnir sig sem frambjóðanda í embætti forvarnarfulltrúa.

  • Leggur til samstarf við jafningjafræðsluna.

Mælendaskrá er opin

  • Eydís mælir með Evu, spennt fyrir hugmyndum hennar.
  • Atli spyr Evu út í hvort hún hafi lausan frítíma. Hún svarar játandi

Gengið er til kosninga, Eva hlýtur kosningu.

Sindri kynnir Eydísi í pontu til að kynna framboð sitt til alþjóðafulltrúa.

  • Áhugi hennar á þessum störfum er að eigin sögn gríðarlega mikill

Sindri Snær leggur til að sá sem ekki nær kjöri til gjaldkera hafi tækifæri á framboði í önnur embætti sem var kosið í meðan atkvæði voru talin

  • Tillagan er samþykkt einróma

Fyrsti þingritari og sjálfskipaður formaður talninganefndar tilkynnir um úrslit kosninga til gjaldkera framkvæmdastjórnar Síf

  • Talin voru 32 atkvæði og af þeim hlaut Níels 13 en Jóhann 19
  • Jóhann telst því réttkjörinn gjaldkeri framkvæmdastjórnar Síf starfsárið 2010-2011

Heiða mælir með Eydísi í stöðu alþjóðafulltrúa og telur hentugt að sama manneskjan gegni því starfi lengur en ár í senn

  • Eydís er samþykkt og endurkjörin með lófataki

Framboð til verkefnastjóra

  • Svanhildur Björg er að læra til vélsstjóra, formaður Vélsstjórafélagsins í VMA
  • Telur sig fulltrúa iðnnema og fullfæra um að sinna starfinu frá Norðurlandi
  • Bjarnþór er 17 ára nemi á náttúrufræðibraut í FG og í Málfundafélagi NFFG
  • Vill að Síf verði hagsmunafulltrúi allra menntaskólanema á ?slandi og bæti kjör þeirra
  • Atli spyr báða frambjóðendur hvaða verkefni þau myndu taka sem fyrsta verkefni sitt á starfsári sínu í framkvæmdastjórn Síf
  • Bjarnþór vill kynna Síf betur fyrir menntaksólanemum landsins
  • Svanhildur vill kynna það betur, sérstaklega fyrir iðnnemum
  • Þau eru bæði samþykkt með lófataki

Sindri Snær les upp nöfn frambjóðenda til aðalstjórnar

  • Unnur Stefánsdóttir
  • Lárus Beck Björgvinsson
  • Helga Haraldsdóttir
  • Matthildur Þórðardóttir
  • Bryndís Lilja Gísladóttir
  • Andri Steinn Harðarsson
  • Þau eru öll samþykkt með lófataki og boðin velkomin til starfa
  • Jakob Sindri Þórsson og Guðlaugur Garðar Eyþórsson “kjörnir” sem varamenn með lófataki

Framboð til ráðgjafa, Sindri Snær víkur þar sem hann er í framboði

  • Þorkell Einarsson
  • Sindri Snær Einarsson
  • Stefán Rafn Sigurbjörnsson
  • Atli Steinn Bjarnason
  • Þorkell mælir með sjálfum sér
  • Atli mælir með öllum frambjóðendum
  • Sindri Snær mælir með sér og Stefáni Rafni og útskýrir að hann sé sitjandi fulltrúi sambandsins í Lín og í æskulýðsráði menntamálaráðuneytisins
  • Hreiðar bætir því við að Sindri sé ritari Læf
  • Ráðgjafar eru samþykktir með lófahristingum
  • Stefán Rafn er samþykktur sem subbukóngur Síf með lófataki

Hreiðar tilkynnir að komandi stjórn megi ákveða hvenær næsta aðalþing verði haldið

  • Heiða kynnir að skettsjakeppni á vegum Síf sé að fara í gang með svakalegum verðlaunum í boði
  • Rauða Kross söfnun einnig á vegum Síf
  • Heiða og Hreiðar kynna að uppi séu áform um innanskólafótboltamót milli menntaskóla og vilja fá viðbrögð fulltrúa við því hver áhugi nemendafélaga gæti verið fyrir þátttöku í slíku
  • Menntaskólinn á Tröllaskaga býst ekki við að áhugi sé fyrir því þar, aðrir virðast áhugasamir
  • Hreiðar áréttar að stefnuskrá, vinnuplan og önnur vinna aðalþingsins sé verkefni komandi framkvæmdastjórnar og útskýrir að þau þurfi að taka til

19:33 Hreiðar Már, framkvæmdastjóri Síf og annar þingforseti slítur þinginu formlega og er því aðalþingi Síf 2010 formlega lokið.

Þingritarar og ábyrgðarmenn fundargerðar:

1. Viktor Orri Valgarðsson

2. Arnór Bjarki Svarfdal

3. Heiða Karen Bergmann Sæbergsdóttir


Hönnun: thordarson.is