Stjórnarfundur vor 2011

2. stjórnarfundur fjórðu stjórnar SÍF
18. – 20. mars 2011

Eftir síðasta stjórnarfund hófst framkvæmdastjórnin handa við að undirbúa mótmæli. Blóðug mótmæli voru haldin 17. nóvember, á Alþjóðlegum degi námsmanna, á Austurvelli með yfirskriftina Hættið að skera okkur niður. Fengum við ágæta umfjöllun auk þess sem menntamálaráðherra kom og ræddi við okkur.

Skipulagning söngkeppninnar hófst snemma og er enn í fullum gangi. Vinnuhópurinn okkar er búinn að vera mjög virkur. Helsta verkefni hans er að koma að umgjörð keppninnar og skipuleggja ýmislegt því tengt.

Í desember fengum við loks fund með menntamálaráðherra og hennar föruneyti. Við kynntum þær breytingar sem hafa orðið á sambandinu, ræddum niðurskurðinn í menntakerfinu og ýmis úrræði og ráðstafanir því tengd, spurðum nánar út í námsskrárbreytingar, minntumst á lífsleiknikennsluna og fleira.

Í kjölfar þess fundar vorum við boðuð aftur upp í ráðuneytið til að ræða nýtt námskrárfyrirkomulag. Ýmislegt var útskýrt og má nálgast glósur frá þeim hjá okkur.

Leiðtogaskólinn gekk vonum framar og var mjög góð mæting. Við fengum flott fólk sem hélt uppbyggjandi fyrirlestra og deildi eigin reynslu, hvernig eigi að starfa í stjórn, algeng mistök í nemendafélagsstörfum, hvernig er að vera leiðbeinandi og ræðumennska.

Bóksalan í janúar gekk mjög vel. Við prófuðum nýjan opnunartíma en ákváðum að sá gamli væri betri. Aftur var ráðinn inn tímabundinn starfsmaður til að halda utan um bóksöluna og tókst það vel til.

Í brjáluðu veðri í febrúar héldum við formannafund í Hinu húsinu. Vegna veðurs voru þó nokkur forföll þó aðallega af höfuðborgarsvæðinu enda alls óvön slíku veðri. Fundurinn var óformlegur og fór einungis í þær umræður sem fulltrúarnir óskuðu eftir. Trúum við að allir hafi tekið með sér fróðleik heim og lært af hvort öðru.

Í febrúar fengum við einnig boð á lokað málþing um stöðu innleiðingar nýju framhaldsskólalaganna. Fólst það að mestu í fyrirlestrum en heyra mátti margar hliðar, þeirra sem enn eru á móti þessum breytingum sem og þeirra sem hafa nú þegar innleitt þær og gengið vel.

Stuttu seinna var fulltrúa okkar boðið á fund rýnishóps um námsgögn. Þar kom margt áhugavert í ljós og voru miklar umræður. Skólastjórnendur, kennarar, bókaútgefendur og, að sjálfsögðu, við voru sammála um að fljótlega væri kominn tími til að námsgögn væru aðgengileg öllum á internetinu. Virtist mikil samstaða og má búast við að undirbúningi verði hrint af stað fyrr en seinna.

HOFF hópurinn (Heilsuefling og forvarnir í framhaldsskólum) fór fremur seint af stað vegna breytinga í ráðuneytinu. Aðeins einn fundur hefur verið haldinn þetta skólaárið en má búast við meiri krafti á næstu vikum. Þrátt fyrir það er enn stefnt að því að halda Íþróttavakninguna aftur og nú jafnvel með nýju sniði.

Tveir fulltrúar fóru til Svíþjóðar á stofnfund NSSN (Nordic School Student Network). NSSN er tengslanet hagsmunafélaga framhaldsskólanemenda á Norðurlöndunum og er tilgangur þess að veita félögunum vettvang til að styðja og styrkja hvort annað. Tilvalinn vettvangur til að leita ráða hjá eldri og reynslumeiri hagsmunafélagum. Allar nánar upplýsingar má nálgast hjá Eydísi sem tekur vel á móti spurningum.

Ábyrgðarmaður alþjóðamála var sendur strax út aftur ásamt öðrum fulltrúa til Dublin á stjórnarfund OBESSU. Samanstóð dagskráin af áhugaverðum fyrirlestrum og umræðuhópum auk formlega hlutans. Mikið var rætt um örvandi, hagstætt og hentugt námsumhverfi, þar sem birta, opin rými, þægileg aðstaða og fleira spiluðu mikið inn í. Auk þess var námsráðgjöf og önnur aðstoð, aðstaða fatlaðra og fleira tekið fyrir.

Miklar breytingar hafa orðið á skrifstofunni og í grunn strúktúr sambandsins. Hreiðar lét af störfum í febrúar og tók Sigurbjörg við. Starfshlutfallið var minnkað úr 100% í 60% auk annarra breytinga á starfi framkvæmdastjórans. Fjármálin og bókhaldið voru tekin í gegn og höfum við ráðið inn bókara til að halda utan um bókhaldið.

Margt er enn á döfinni. Við erum í 1. maí nefnd og hlökkum til að fjölmenna í kröfugöngunni í vor. Hver veit nema við bjóðum líka upp á kaffi og kakó.

Við erum í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins og Ríkissjónvarpið að standa að keppninni Gerðu betur sem verður haldin núna í haust. Gerðu betur snýst um hugvit, útsjónarsemi, reddingar og kappsemi. Keppnin felst í ýmiskonar þrautum sem reyna á mismunandi hæfni.

Söngkeppnin verður núna aðra helgina í apríl. Við vonum að allir séu sáttir við skipulagið núna í ár og sammála um að það hafi bæst til muna. Vinnuhópur SÍF hefur skipulagt dagskrá þáttanna sem sjá má á stöð 2. Allt í opinni dagskrá.

Við höfum verið í samskiptum við ungan mann sem stefnir á að gefa út framhaldsskólablað núna í haust. Við erum spennt fyrir því samstarfi og vonum að framhaldsskólanemendur munu nýta sér það tækifæri til að koma málefnum sínum á framfæri. Við vorum einnig í samskiptum við Monitor en komumst að þeirri niðurstöðu að SÍF myndi henta betur að hafa virkt svæði inn á mbl.is sem kemur vonandi í gang von bráðar.

Framkvæmdastjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema
Heiða Karen Sæbergsdóttir, formaður
Þorbjörg Ásta Leifsdóttir, ritari
Eydís Helga Árnadóttir, ábyrgðarmaður alþjóðamála
Eva Brá Axelsdóttir, ábyrgðarmaður forvarnamála
Bjarnþór Ingi Sigurjónsson, verkefnastjóri
Svanhildur Björg Pétursdóttir, verkefnastjóri


Hönnun: thordarson.is