Stjórnarfundur vor 2010
Skýrsla framkvæmdarstjórnar SÍF skólaárið 2009-2010
Framkvæmdastjórn SÍF samanstendur af formanni, ritara, gjaldkera, tveimur verkefnastjórum, ábyrgðarmanni forvarna og ábyrgðarmanni alþjóðamála.
Hver og einn vinnur að verkefnum tengdri sinni stöðu en einnig er mikil samvinna og tilfallandi verkefnum deilt á milli eftir áhuga.
Við höfum gert margt og mikið það sem af er kennsluárs;
Formaður SÍF kom að skipulagi friðarmerkisins á Miklatúni, þjóðfundarins, “Bílar og fólk” og fleira, svo eitthvað sé nefnt. Einnig sat hann fundi vegna kynningar á íþróttaeflingu í framhaldsskólum á vegum ÍSÍ sem og fund með Þorgrími Þráinssyni. Fyrir stuttu sátu formaður og verkefnastjóri auk þess fund um foreldrasamstarf á framhaldsskólastigi.
Helsta verkefni ritara er að skrá niður fundargerðir af fundum framkvæmdarstjórnar og sjá til þess að þær séu sendar framkvæmdarstjórnarmeðlimum. Einnig fellur fundarstjórn í hlut ritara forfallist formaður. Þar sem ekki náðist að kjósa nýjan ábyrgðarmann alþjóðamála fyrir fyrstu OBESSU ráðstefnuna hljóp ritari í skarðið og fór út með fyrrverandi alþjóðafulltrúa.
Helsta verkefni verkefnastjóra hefur verið að koma hlutunum í gegn og taka að sér tilfallandi verkefni. Þar með telst samskipti við SÍFara hvort sem er í gegnum tölvupóst eða símhringingar. Auk þess sem verkefnastjóri situr ýmsa fundi sem SÍF er boðað á. Helsta verkefni verkefnastjóra þetta skólaárið er þó fyrst og fremst Réttindayfirlýsingin, eða Kveikjum á perunni.
Réttindayfirlýsingin var þýdd, hreinskrifuð og að lokum prentuð. Hún var send í alla aðildarskólana og afhent Mennta- og menningarmálaráðherra þann 17. nóvember, á Alþjóðlegum degi námsmanna. Þann 17. nóvember var einnig haldin kynning í aðildarskólum, sem verkefnastjóri útbjó, á tilefni dagsins og Réttindayfirlýsingunni. Sama dag fórum við í Zuuber á fm957 og á Bylgjuna til að kynna herferðina og birtumst í einhverjum netmiðlum.
Ábyrgðarmaður alþjóðamála hefur það sem af er skólaárs farið á tvær ráðstefnur á vegum OBESSU (the Organising Bureau of Europian Student Unions). Sú fyrri var í Luven í Belgíu í tilefni 70 ára afmælis Alþjóðlegs dags námsmanna. Sú ráðstefna samanstóð af fyrirlestrum frá fólki allstaðar að um hagsmunabaráttu nemenda í gegnum tíðina. Seinni ráðstefnan var haldin í Vín í Austurríki og fór gjaldkeri SÍF með. Þar var unnið í hópavinnu og útbúin ályktun, svipað og á síðasta sjórnarráðsfundi SÍF.
Ábyrgðarmaður forvarnarmála hefur helst haft það hlutverk að mæta á HOFF-fundi (Heilsuefling og forvarnir í framhaldsskólum). Þar eru ýmis málefni rædd um forvarnir í framhaldsskólum. Einnig hefur forvarnarfulltrúi setið fundi í Menntamálaráðuneytinu vegna Íþróttavakningarinnar og tekið þátt í skipulagningu og vinnu í kringum hana.
Við höfum átt í góðu samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Þar sem þau hafa beðið um álit okkar og þátttöku í ýmsum málefnum. Eins og í sambandi við fyrirkomulag nýs skólakerfis í samræmi við framhaldsskólalögin sem voru samþykkt 2008 sem og aðgerðir gegn atvinnuleysi ungs fólks, en okkur gafst tækifæri til að koma með athugasemdir við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar.
Á síðasta þingi var stjórnarfyrirkomulaginu breytt á þann veg að hver skóli hefði SÍFara og fór ákveðin vinna í að koma þeim hópi á hreint svo mögulegt væri að veita upplýsingar beint til þeirra. Út frá því var síðan okkar uppfærð og facebook síða gerð að virkri upplýsingaveitu.
Skólaárið byrjaði á norrænni ráðstefnu um heildstæða menntastefnu sem ritari og verkefnastjóri mættu á. SÍF tók þátt í athafnavikunni í nóvember og í Snilldarlausnum, keppni sem Innovit sá um. Auk þess sátu nokkrir framkvæmdarstjórnarmeðlimir þjóðfundinn.
Formaður og verkefnastjóri fóru einnig í byrjun skólaárs á fund með Mennta- og menningarmálaráðherra og föruneyti þar sem komandi starfsemi félagsins var kynnt og niðurskurður og ýmis vandamál sem uppi voru í nokkrum skólum tekin fyrir.
SÍF er aðildarfélag að Landssambandi æskulýðsfélaga og sátum við til dæmis stefnumót ungs fólks við stjórnmálamenn og námskeið í notkun Kompás.
Við fórum á fund með nemendafélögum Fmos, Borgó og MA, kynntum félagið og starfsemina í kringum það. Stefnt er að því að þau verði fullgild aðildarfélög að SÍF á næsta þingi.
SÍF stóð fyrir bóksölu líkt og síðustu annir. Hún var staðsett í Tækniskólanum og gekk vel fyrir sig. Framkvæmdarstjórn stóð þar vakt ásamt aðstoð frá fáeinum stjórnarmeðlimum.
Núna vinnum við að Söngkeppni framhaldsskólanna með Amevents og skipuleggjum formannafund, kynningu á SÍF og Réttindayfirlýsingunni og margt fleira.
Þriðja framkvæmdarstjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema
Þorkell Einarsson formaður
Auður Inez Sellgren ritari
Margrét Ársælsdóttir gjaldkeri
Heiða Karen B. Sæbergsdóttir verkefnastjóri
Atli Steinn Bjarnason verkefnastjóri
Eydís Helga Árnadóttir ábyrgðarmaður alþjóðamála
Atli Dan Ólafsson ábyrgðarmaður forvarnarmála