Stjórnarfundur haust 2010
Skýrsla framkvæmdastjórnar
Nú er hafið nýtt starfsár og stefnir í nokkuð gott. Ný framkvæmdastjórn tók við á þinginu og er hún að mestu leyti skipuð nýju fólki, að undanskyldum tveimur sem sátu einnig í framkvæmdastjórninni síðasta ár.
Byrjun annarinnar hefur að mestu farið í að koma nýjum aðilum inn í málin, minni verkefni og að undirbúa komandi verkefni og starfsemina. Við erum komin með ýmislegt á dagskrána hjá okkur. Má þar nefna leiðtogaskóla, formannafund, kompás-námskeið, sundlaugatónleika, forvarnardag o.fl.
Unnið er að efni til að sporna gegn og vekja athygli á fordómum gegn iðnnemum. Auk þess er verið að sækjast eftir styrkjum til að standa að kynningarherferð með rútu hringinn um landið. Ætlunin hefur lengi verið að senda út fréttabréf um starfsemi og verkefni SÍF sem og önnur málefni en eina sem vantar er viðtakendur en úr því verður bætt sem fyrst.
Á þinginu var ákveðið að eitt af markmiðum SÍF væri Ein rödd – allir framhaldsskólar sameinaðir. Við erum því stolt af því að tilkynna ykkur það að núna verða teknar fyrir aðildarumsóknir og sjáum við fram á að markmiðinu verði náð að fullu.
Fljótlega verður sent út boð í vinnuhópa SÍF starfsársins 2010-2011. Þeir hópar sem liggja fyrir núna koma að forvörnum, kynningarmálum og áfengismæla-ályktun. Samráðshópur Söngkeppninnar er með svipuðu móti en hann er í samstarfi við AMevents. Með þessu erum við að efla virkni sambandsins en vart er hægt að undirstrika fyllilega mikilvægi þess að vinna sambandsins sé öflug svo hún komist sem best til skila og við afrekum sem mest.
Starfsmannamál sambandsins eru nú í endurskoðun og stefnum við að því að ráða inn tvo starfsmenn í stað eins. Þetta er liður í því að auka starfsemi og virkni sambandsins sem er oft í hömlum þess að aðstandendur sambandsins eru nánast einungis námsmenn sem hafa minni tíma aflögu til að leggja sitt af mörkum.
Að lokum má nefna bók um rekstur nemendafélaga sem nú er í bígerð. Við sjáum fram á að hún muni reynast nemendafélögunum dýrmætt upplýsinga- og hjálpartól þegar kemur að nemenda- og félagsstörfum.
Við vonumst til að í samstarfi við ykkur munum við ná markmiðum okkar og vinna öflugt starf við að koma starfsemi okkar og málefnum á framfæri.
F.h. framkvæmdastjórnarinnar
Heiða Karen Sæbergsdóttir
Formaður SÍF
Af minni verkefnum má nefna;
Svar við bréfi frá FG vegna pókermóts nemendafélagsin
Rödd æskunnar, ráðstefna á vegum Norænnu ráðherranefndarinnar
OBESSU fundir
Aðkoma að Scetcha-keppni Umhverfisstofnunar
Aðkoma að komandi fótboltakeppni framhaldsskóla á vegum Soccerade og Stöð2
Samvinna með AMevents, skipuleggjendum Söngkeppninnar
Grein gegn fyrirhuguðum niðurskurði
Nýr HOFF samningur og verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli formlega sett
Dagskrá starfsársins 2010-2011
Könnun á skóla- og námsaðstöðu nemenda
Bóksölur – í byrjun janúar og lok ágúst
Mótmæli gegn fjárlagafrumvarpi – haustönn 2010
Leiðtogaskóli – fyrirlestrar sem koma að rekstri nemendafélaga
Formannafundur – fundur með öllum formönnum, óháð aðild að SÍF
Forvarnardagurinn – vorönn 2011
17. nóvember – alþjóðlegur dagur námsmanna
Sundlaugatónleikar – á Akureyri 8. apríl 2011
Kompás námskeið – lýðræðis- og mannréttindafræðsla
Stjórnarfundur – vorönn 2011
Þing – september 2011
…og margt annað!