Þing 2010
Innanlandsmál
Fundir og ráðstefnur
Fulltrúar SÍF hafa setið marga fundina og ráðstefnur á vegum sambandsins. Má þar nefna norræna ráðstefnu um Heildstæða menntastefnu og þjóðfund.
LÆF hélt Stefnumót ungs fólks við stjórnmálamenn þar sem nemendum var boðið að mæta og spyrja nokkra stjórnmálamenn spjörunum úr. Auk þess sem haldnir voru fyrirlestrar um stöðu ungs fólks og framtíðarhorfur þeirra sem og þjóðarinnar.
Sambandið hefur sjálft staðið fyrir fundum. Má þar nefna formannafundinn þar sem mættu formenn frá hinum ýmsu skólum, einnig þeim sem ekki eru í SÍF, og ræddu málefni framhaldsskólanema í dag.
Tveir stjórnarfundir voru haldnir þetta árið, einn hvora önn. Sá fyrri í Reykjavík og sá seinni að Steinsstöðum, nálægt Akureyri. Þar mættu stjórnarmeðlimir SÍF og unnu að ályktunum í gegnum vinnuhópa.
Í sumar var haldin ráðstefna undir formerkjum SÍF sem kallaðist “Creative campaigning and innovative activism”. Þátttakendur voru nemendur frá Danmörku, Bosníu, Finnlandi og Serbíu auk Íslendinga. Þar var unnið með nýstárlegar herferðir, hvað það er sem lætur kynningarefni skila árangri, hvernig skal vekja athygli á verðugum málstað o.s.frv. Fyrirlestrar, hópavinna, gjörningur á 17. júní og margt fleira skemmtilegt fór fram.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
SÍF er í góðu samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Í gegnum það er fulltrúum sambandsins oft boðið að sækja fundi og ráðstefnur er snerta starfsemi okkar.
Einnig eru þau málefni, lagabreytingatillögur og aðrar umræður er koma að framhaldsskólanemendum, menntun þeirra og stöðu, borin undir framkvæmdastjórnina sem fær þar með tækifæri til að koma með athugasemdir og koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri.
Merkilegur fundur var haldinn í ráðuneytinu undir yfirskriftinni Foreldrasamstarf á framhaldsskólastigi og fóru tveir fulltrúar með ræður þar í sambandi við jákvæðar forvarnir og stöðu framhaldsskólanema.
Reglulega hefur vinnuhópur á vegum ráðuneytisins fundað, svokallaðir HOFF-fundir. Þar hafa verið rædd ýmis málefni og haldnar kynningar tengdar forvörnum.
Kynningarmál og stærri verkefni
SÍF stendur fyrir Réttindayfirlýsingu í gegnum OBESSU sem gengur undir formerkjunum Kveikjum á perunni. Í henni koma fram þau réttindi framhaldsskólanema sem við teljum þörf á að verja og framfylgja, sem og réttindi sem við stefnum á að öðlast í framtíðinni.
Þann 17. nóvember var haldið upp á Alþjóðlegan dag námsmanna og Réttindayfirlýsingin afhent Mennta- og menningarmálaráðherra. Tækifærið var nýtt til að kynna herferðina. Í þeim tilgangi fóru forsvarsmenn í viðtöl á FM957 og Bylgjunni sem og fréttir birtust á netmiðlum.
SÍF stóð fyrir Sundlaugatónleikum á Akureyri sömu helgi og Söngkeppnin stóð yfir. Tónleikarnir gengu rosalega vel fyrir sig, fínasta mæting og mjög góð stemmning.
Bóksala SÍF var starfrækt líkt og áður í skólabyrjun, janúar og ágúst. Hún var staðsett í Tækniskólanum og vel nýtt. Fyrra skiptið var mannað af framkvæmdastjórn og stöku stjórnarmeðlim en fyrir það seinna var ráðin inn manneskja til að sjá um starfsemina með stuðningi framkvæmdastjórnar.
Önnur samstarfsverkefni
SÍF hefur komið að ýmsu fleira, svo sem;
Við skipulagningu friðarmerkisins á Miklatúni
Söngkeppninnar á Akureyri í samstarfi við Amevents
Íþróttavakningarinnar
Snilldarlausnir, nýsköpunarkeppni á vegum Innovit.
Verkalýðsdagsins 1. maí, þar sem SÍF tók þátt í göngunni og formaðurinn hélt ræðu.
Sem og margt fleira.
Alþjóðamál
Þónokkrar ráðstefnur hafa verið haldnar á vegum OBESSU síðasta árið.
Þann 17. nóvember var haldin ráðstefna í Brussel í Belgíu í tilefni 70 ára afmælis Alþjóðlegs dags námsmanna.
Önnur ráðstefna var haldin í Vín, Austurríki undir formerkjunum “Education in the Globalised World: threats and chances”. Þar voru rædd mikilvæg málefni sem snerta framhaldsskólanema nú á dögum. Í Vín var einnig haldinn stjórnarráðsfundur, en hann hefur næst mest völd í stjórnarskipan OBESSU.
Í maí var fyrsti fundur Columbian Student Watch í Kaupmannahöfn, Danmörku. Þar var kynnt slæm staða námsmanna í Kólumbíu og myndað tengslanet nemenda í Evrópu sem saman beita þrýstingi á stórnvöld heima fyrir sem og í Kólumbíu.
Frá Kaupmannahöfn héldu tveir fulltrúar SÍF áfram til Frakklands á vinnufund á vegum OBESSU. Yfirskrift fundarins var “Education: A Right, not a Privilege – Ways to achieve social inclusion in schools, regardless of economic background”.
Í framhaldi af því fór fram aðalþing OBESSU þar sem ný stjórn var kosin og stefna hagsmunabaráttu nemenda í Evrópu mótuð.