Ályktun um áfengismælanotkun

Samband íslenskra framhaldsskólanema fordæmir notkun áfengismæla í núverandi mynd og leggur áherslu á að áfengismælar séu ekki misnotaðir eða notaðir til hræðsluáróðurs. SÍF hafnar þó ekki notkun áfengismæla til að úrskurða um ölvun.

Við teljum rangt að taka fólk út tilviljunarkennt eða mismuna fólki eftir aldri. Koma á jafnt fram við alla óháð hentisemi þeirra sem valdinu beita.

SÍF styður jákvæðar forvarnir en telur áfengismæla tæpast teljast til þeirra. Við teljum nauðsynlegt að efla jákvæðar forvarnir og hvetja til jákvæðrar hegðunar.

SÍF telur að hægt sé að nota áfengismæla á uppbyggjandi hátt og leggur til að nemendum sé boðið að nýta sér þá til að sýna fram á rétta hegðun. Sé þá leitast við að umbuna þeim sem velja rétta leið í stað þess að refsa þeim sem eru undir áhrifum.

SÍF undirstrikar mikilvægi þess að nemendum undir 18 ára aldri í annarlegu ástandi sé aldrei vísað frá samkomum á vegum skólanna heldur sé þeim undir öllum kringumstæðum veitt aðstoð. Einnig teljum við rétt að eldri nemendum sé boðin aðstoð og hún veitt sé það þeirra vilji.

Bregðast þarf við óæskilegri hegðun á viðeigandi máta og gefa nemendum tækifæri til að bæta sig, brjóti þeir af sér. Í úrræðum og refsingum þarf að líta til lengri tíma með hagsmuni nemendanna í huga.


Hönnun: thordarson.is