Grein 9 – Kynjajafnrétti

Kynjajafnrétti

9.1 Misræmi í færni námsmanna, eftir kyni og kynjahlutverkum, skal bætt með menntun. Skólar skulu ávallt starfa í þágu kynjajafnréttis í samfélaginu.

9.2 Til þess að menntun styðji við kynjajafnrétti, skal þess gætt að staðalímyndir kynjanna séu ekki notaðar í námsferlinu.

9.3 Starfsfólk framhaldsskóla skal vera ráðið samkvæmt hæfnismiðuðum kröfum. Kyn, kynhneigð, trú, stjórnmálaskoðanir og svo framvegis skal ekki skipta máli enda skulu skólar endurspegla fjölbreyttni samfélagsins.


Hönnun: thordarson.is