Grein 8 – Rétturinn til að viðhalda menningarlegum og persónulegum einkennum
Rétturinn til að viðhalda menningarlegum og persónulegum einkennum
8.1 Hver og einn nemandi skal hafa fullan rétt á að viðhalda menningararfi sínum. Námsmenn sem tala tungumál minnihlutahópa eiga rétt á kennslu í sínu máli. Valáfangar ættu einnig að vera í boði fyrir þá sem tilheyra meirihluta þjóðernis eða trúarbragða sem snúa að menningu og tungumálum minnihlutahópa.
8.2 Skólakerfið skal virða einstaklingseinkenni námsmanna. Jafnrétti til náms á ekki að hafa í för með sér einhæfni: Námsmenn skulu eiga rétt á að þróa sína persónulegu hæfileika og einkenni samkvæmt eigin lífsskoðunum.