Grein 7 – Réttur til aðgengis að námi

Réttur til aðgengis að námi

7.1 Engar fjárhagslegar, tæknilegar eða félagslegar hindranir skulu standa í vegi fyrir því að einstaklingur geti stundað nám á framhaldsskólastigi.

7.2 Aðgangur að hærra skólastigi ætti að vera aðgengilegur öllum þeim sem lokið hafa framhaldsskólagöngu. Skilyrði fyrir aðgangi að hærra skólastigi skulu vera sveigjanleg og eiga að miða að því að námsmenn sé hvattir til að sækja um aðgang.

7.3 Námsmenn skulu ekki skyldugir til að sérhæfa sig í námi fyrr en þeir hafa gert sér fulla grein fyrir mikilvægi og afleiðingum ákvörðunar sinnar.

7.4 Aðgengi fatlaðra skal vera viðunandi svo þeir geti stundað nám jafnfætis öðrum skólafélögum.

7.5 Námsmönnum skal heimilt að gera hlé á námi sínu án þess að áunnar námseiningar tapist. Auk þess skal námsmaðurinn eiga möguleika á að taka upp þráðinn þar sem hann skildi við námsefnið fyrir námshlé.


Hönnun: thordarson.is