Grein 5 – Gæði menntunar
Gæði menntunar
5.1 Allir námsmenn eiga rétt á hlutlausri kennslu sem stenst nútímakröfur.
5.2 Gæðaeftirlit skal tryggt á öllum stigum námsins.
5.3 Skólagjöld skulu ekki innheimt. Ríkið skal standa straum af kostnaði við nám á framhaldsskólastigi.
5.4 Sérhæft starfsnám (s.s. iðn- og starfsbrautir) á að gera nemendum fært að finna sér vinnu sem hæfir færni þeirra og áhugasviði. Hagsmuna- og verkalýðsfélög skulu vera með í ráðum við ákvarðanatöku sem snýr að starfsnámi. Starfsnám skal veita möguleika á sveigjanlegu starfsvali í framtíðinni.
5.5 Framhaldsskólamenntun almennt skal standast kröfur bæði vinnumarkaðs og háskóla um gæði, til að nemendum sé kleift að nýta menntun sína á hærri menntunarstigum sem og á vinnumarkaði.
5.6 Skólar skulu útvega viðunandi efni og tækni sem nauðsynleg er á viðkomandi námsbraut.
5.7 Allar námsbrautir á framhaldsskólastigi skulu innihalda almenna menntun.
5.8 Skólar skulu bjóða upp á sérstök úrræði til að bæta upp fyrir þekkingarhalla nemenda sé fyrri menntun eða uppeldi ábótavant. Ef annað af þessu á við skal þetta leiðrétt nemandanum að kostnaðarlausu.
5.9 Allir hlutar framhaldsskólakerfisins eru jafn mikilvægir og skulu njóta sömu réttinda og sömu stöðu.
5.10 Í upphafi hvers skólaárs skal skólanefnd/ráð rökstyðja opinberlega hvers vegna bókalistum er breytt. Bókalistum skal ekki breytt af fjárhagslegum ástæðum heldur menntunarlegum.
5.11 Námsmenn skulu hafa viðeigandi og sveigjanlegar stundatöflur og námsáætlanir í gegnum skólagöngu sína.