Grein 4 – Borgaraleg réttindi

Borgaraleg réttindi

4.1 Almenn borgaraleg réttindi skulu gilda um alla námsmenn.

4.2 Menntun verður að byggja á gagnkvæmri virðingu, skilningi, lýðræði, þolinmæði og jafnrétti. Skólakerfið skal sporna gegn mismunun í öllum sínum myndum, fasisma og kynþáttahatri. Námsmenn skulu eiga rétt á öruggu námsumhverfi.

4.3 Trúnaðarupplýsingar er snúa að námsmönnum skulu virtar. Trúnaðarupplýsingar skal einungis nota að fengu upplýstu samþykki viðkomandi námsmanns.

4.4 Allir námsmenn skulu hafa aðgengi að umboðsmanni sem hefur menntun á sínu ábyrgðarsviði, sbr. Umboðsmanni barna.

4.5 Námsmenn skulu verndaðir gegn hverskonar misnotkun.


Hönnun: thordarson.is