Grein 2 – Réttur til þátttöku
Réttur til þátttöku
2.1 Námsmönnum skal tryggð þátttaka í ákvarðanatöku um öll málefni er snúa að skólunum. Þetta skal tryggja með löggjöf.
2.2 Vald til ákvarðanatöku skal ekki vera á höndum fárra einstaklinga; Ákvarðanataka á öllum stigum skal vera opin og lýðræðisleg.
2.3 Innan hvers skóla skal starfræktur samráðsvettvangur fyrir ákvarðanatökur, t.d. Skólaráð.
2.4 Námsmenn skulu geta haft áhrif á innihald námsefnis, kennsluaðferðir, námsskrá og bókalista.
2.5 Námsmönnum ætti að vera tryggt viðeigandi og gegnsætt mat á námi þeirra. Námsmenn skulu eiga rétt á víðtæku og samfelldu mati. Auk þess skulu námsmenn eiga möguleika á því að meta gæði kennara og kennslu.
2.6 Námsmenn skulu standa jafnfætis kennurum við ákvarðanatöku um málefni skólans.
2.7 Námsmönnum skal tryggður nægilegur tími til náms.