Grein 12 – Upplýsingaflæði og ráðgjöf
Upplýsingaflæði og ráðgjöf
12.1 Námsmenn skulu upplýstir um réttindi sín og möguleika í námi með viðeigandi hætti. Þetta skal einnig ná til upplýsinga um uppbyggingu menntakerfisins í heild og möguleika til náms, styrkja og námslána.
12.2 Allir námsmenn skulu hafa aðgang að leiðsögn og aðstoð vegna persónulegra mála. Félags- og sálfræðiaðstoð skal vera aðgengileg innan skólanna.
12.3 Námsmenn skulu ávallt vera upplýstir um ákvarðanatöku sem snýr að þeim, námi þeirra og því sem tengist náminu. Áætlanir fyrir hvert fag og námsskrá skal vera kynnt fyrir nemendum fyrir upphaf hverrar annar.
12.4 Námsmenn skulu hafa aðgang að hvers konar upplýsingum og þekkingu án ritskoðunar eða annarra takmarkana.