Grein 10 – Sveigjanlegt skólakerfi
Sveigjanlegt skólakerfi
10.1 Yfirvöld skulu veita skólum sveigjanlegan ramma til að starfa innan, en þó með skilgreindum almennum viðmiðunum og lágmarkskröfum.
10.2 Ekki skal litið svo á að menntun og nám eigi sér eingöngu stað meðan námsmaðurinn er í skóla. Skólakerfið skal aðlaga sig að hugmyndum um símenntun. Námsmönnum skal kennt að leita sér upplýsinga á sjálfstæðan hátt, ekki aðeins að taka við þekkingu á óvirkan hátt í náminu.
10.3 Námsmenn skulu eiga rétt á því að fá kennslu með viðeigandi hætti þegar þeir eru fjarverandi frá skóla vegna veikinda eða annarra óviðráðanlegra ástæðna.