Grein 1 – Réttur til funda og félagamyndunar

Grein 1

Réttur til funda og félagamyndunar

1.1 Réttur nemenda til að bindast samtökum á hvaða skólastigi sem er skal vera tryggður með löggjöf.

1.2 Í hverjum skóla skal vera lagalega viðurkennt nemendaráð, lýðræðislega kjörið af nemendum skólans. Allir nemendur skulu hafa jafnan rétt til framboðs til nemendaráðs.

1.3 Námsmenn og námsmannahreyfingar skulu eiga rétt á að stofna og starfrækja námsmannahreyfingar á landsvísu.

1.4 Viðkomandi skóli, sveitarfélag og/eða ríkið skal, eftir því sem við á, styðja við samtök námsmanna með fjármagni, aðstöðu eða öðru sem nauðsynlegt kann að teljast svo samtökin geti starfað með eðlilegum hætti. Þessi stuðningur skal þó aldrei takmarka sjálfstæði samtakanna.

1.5 Námsmannahreyfingar skulu eiga möguleika á að sinna verkefnum sínum á skólatíma.

1.6 Námsmenn skulu eiga rétt á að koma saman, fara í verkfall, mótmæla og tjá skoðanir sínar, innan sem utan skóla. Þeir skulu geta gert svo án takmarkana af hálfu skólans eða annarra yfirvalda.


Hönnun: thordarson.is