Höldum áfram – eflum menntun! (1.mai ræða félagsins)

1. maí 2011 14:55

Ágætu fundargestir

Samfélag okkar glímir við margþættan vanda sem snertir okkur öll. Þessi vandi birtist okkur meðal annars í sívaxandi atvinnuleysi ungs fólks. Um 18% atvinnulausra er ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Af þeim eru 75% sem aðeins hafa lokið grunnskólaprófi. Skólakerfið hefur ekki getað tekið við öllum þeim fjölda ungs fólks sem þangað hefur leitað og það hefur aukið enn á vandann.

Staðreyndin er sú að menntakerfið á undir högg að sækja og stendur frammi fyrir miklum niðurskurði sem mun hafa víðtækar afleiðingar. Þrátt fyrir að nú eigi að troða nemendum inní skólakerfið, langt umfram getu, var engu að síður hátt í 500 manns neitað um inngöngu í framhaldsskóla síðastliðið haust.

Að mati Sambands íslenskra framhaldsskólanema er eitt mikilvægasta verkefni okkar núna að efla og styrkja menntun ungs fólks. Við þurfum sterkara og öflugra menntakerfi sem getur mætt eftirspurn nemenda eftir fjölbreyttu námi. Við þurfum að gefa öllum tækifæri til þess að mennta sig á sínum forsendum. Menntakerfið okkar í dag er í sjálfu sér fremur einhæft og ekki við allra hæfi. Hvar eru lýðháskólarnir? Hvar eru einstaklingsmiðuðu skólarnir sem fylgja eftir áhugasviði nemendanna?

Helsti fjölbreytileiki menntakerfisins felst í iðnnáminu en þar er líka við vanda að etja. Þar ber til dæmis á hindrunum við að ljúka starfsnámi. Nemendur tefjast í námi vegna skorts á starfssamningum og í sumum tilfellum stöðvar það námið algjörlega. Nemendur neyðast þá til að snúa sér á aðrar námsbrautir eða í atvinnuleit. Nemendum er ekki gefið tækifæri til að ljúka því sem þeir byrjuðu á.

Hlutfall ungs fólks með formlega menntun er mun hærra í nágrannaríkjum okkar. Staðreyndir sýna okkur að við þurfum að fjölga fagmenntuðu fólki á vinnumarkaði. Til dæmis er eftirspurn eftir iðn- og tæknimenntuðu fólki mikil en atvinnulífið hefur lýst yfir þörf fyrir fjölgun iðn- og tæknimenntaðra um 11%. Til að mæta þessari eftirspurn þurfum við að efla menntakerfið til muna. Tækifærin eru til staðar en aðgerða er þörf.

Þrátt fyrir þessa erfiðleika horfum við vongóð fram á veginn og trúum því að í sameiningu getum við leyst allan okkar vanda með þolinmæði og framtakssemi, í góðri samvinnu við yfirvöld, skólakerfið, atvinnulífið og aðra tengda aðila.

Við fögnum þeim aðgerðum sem nú þegar hafa verið settar í gang en við vitum að krafturinn dvínar ef þrýstingurinn er enginn. Við höldum því áfram að þrýsta á framfarir á sama tíma og við krefjumst frekari vitundarvakningar á aðstæðum nemenda og ungs fólks og krefjumst frekari aðgerða sem færa okkur skrefinu nær bjartari framtíð á sterkari grunni. Höldum áfram – eflum menntun!

Ummæli:

Untitled Document

Eldri færslur

  • 17. nóvember 2011 15:02 | Lesa meira.

    17. nóvember Alþjóðlegur dagur námsmanna- Til hamingju námsmenn!

    Ekki láta þér bregða rekist þú á hóp námsmanna hlaupandi um stræti borgarinnar brosandi út að eyrum. Í dag fögnum við nefnilega alþjóðlegum degi námsmanna.
    Í áraraðir hefur 17. nóvember verið haldinn hátíðlegur en uppruna dagsins má rekja aftur til ársins 1939, þegar Þjóðverjar réðust inn í Tékkóslóvakíu. Meðal þeirra sem börðust gegn hersetu þjóðverja voru [...]

  • 12. október 2011 18:41 | Lesa meira.

    Samband íslenskra framhaldsskólanema óskar eftir að ráða starfsmann í stöðu verkefnastjóra

    Helstu verkefni eru upplýsingaþjónusta fyrir nemendur á framhaldsskólastigi, umsjón með sérverkefnum SÍF, og aðstoð við framkvæmd á árlegum verkefnum.
    Gerð er krafa um að viðkomandi hafi staðgóða þekkingu á menntamálum, góð tök á íslenskri og enskri tungu, reynslu af vinnu með ungu fólki, góða hæfni í mannlegum samskiptum og geti unnið sjálfstætt. Menntun sem nýtist í [...]

  • 4. október 2011 14:44 | Lesa meira.

    Fréttabréf Sambands íslenskra framhaldsskólanema

    Á næstu dögum mun SÍF senda frá sér fréttabréf, en stefnt er að því að senda út að jafnaði mánarlegt fréttabréf með fréttum af starfinu, upplýsingum um viðburði á vegum sambandsins og aðildafélaga, og tækifærum fyrir námsmenn innanlands og erlendis.
    Fréttabréfið verður sent á alla formenn nemendafélagann sem og sífara, en að auki verður það birt [...]

  • 20. september 2011 11:09 | Lesa meira.

    Ný framkvæmdastjórn SÍF kosin

    Síðastliðna helgi, 16.-17. september, fór fram 5. Þing Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Þingið fór fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð og var sótt af fulltrúum framhaldsskóla á Íslandi.
    Að venju var kosin ný framkvæmdastjórn sem hefur þegar tekið til starfa.
    Framkvæmdastjórn SÍF er svo skipuð:
    Formaður – Andri Steinn Hilmarsson
    Ritari – Eva Brá Axelsdóttir
    Gjaldkeri – Níels Þóroddsson
    Fulltrúi alþjóðamála – Lilja [...]

  • 15. september 2011 21:02 | Lesa meira.

    Fréttatilkynning SÍF

    Föstudaginn 16. September næstkomandi verður fimmti aðalfundur Sambands íslenskra framhaldsskólanema settur í húsakynnum Menntaskólans við Hamrahlíð af Heiðu Karen Sæbergsdóttur, formanns SÍF. Á fundinum verða 76 fulltrúar framhaldskóla á Íslandi.
    Helstu mál sem tekin verða fyrir á fundinum eru:
    Kennsluaðferðir; hvernig viljum við, framhaldsskólanemendur, að kennslu okkar sé háttað.
    Þátttaka nemenda; hvernig má auka þátttöku nemanda í félagsmálum [...]

  • 22. júní 2011 00:15 | Lesa meira.

    Stefán Rafn ráðinn ritstjóri Framhaldsskólablaðsins

    Framkvæmdastjórn SÍF réði Stefán Rafn Sigurbjörnsson sem ritstjóra Framhaldsskólablaðsins í byrjun vikunnar. Undirbúningur að útgáfunni hefur staðið yfir síðan í vor og fyrsta tölublaðið mun líta dagsins ljós í ágúst, þegar nám hefst.
    Stefán lauk stúdentsprófi af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ vorið 2008, og var forseti Nemendafélags FG, auk þess að keppa í Morfís fyrir hönd [...]

  • 13. júní 2011 21:17 | Lesa meira.

    Lokað á morgun 14. júní

    Skrifstofa SÍF verður lokuð 14. júní vegna sumarfría en opnar að nýju þann 15. júní.
    Gleðilegt sumar!

  • 23. maí 2011 11:29 | Lesa meira.

    Framhaldsskólablaðið

    Samband íslenskra framhaldsskólanema mun frá og með næsta hausti hefja reglubundna útgáfu á blaði fyrir framhaldsskólanema, sem verður dreift í alla framhaldsskóla landsins. Við stefnum á útgáfu fjögurra tölublaða á næsta skólaári, og það fyrsta á að koma út um leið og skólarnir byrja.
    Við vonum að okkur takist að búa til gott blaðð þar sem [...]

  • 23. maí 2011 11:27 | Lesa meira.

    SÍF óskar eftir ritstjóra að framhaldsskólablaði

    Samband íslenskra framhaldsskólanema leitar að ritstjóra sem á að ritstýra blaði fyrir framhaldsskólanema. Starfið er hlutastarf og getur hentað vel með námi. Gefin verða út fjögur tölublöð á skólaárinu 2011-2012, það fyrsta í ágúst næstkomandi. Í starfi ritstjóra felst að sjá um efni blaðsins, að sjá um samskipti við aðildarfélög SÍF í því skyni að [...]

  • 1. maí 2011 14:55 | Lesa meira.

    Höldum áfram – eflum menntun! (1.mai ræða félagsins)

    Ágætu fundargestir
    Samfélag okkar glímir við margþættan vanda sem snertir okkur öll. Þessi vandi birtist okkur meðal annars í sívaxandi atvinnuleysi ungs fólks. Um 18% atvinnulausra er ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Af þeim eru 75% sem aðeins hafa lokið grunnskólaprófi. Skólakerfið hefur ekki getað tekið við öllum þeim fjölda ungs fólks sem þangað hefur leitað og það hefur [...]


Hönnun: thordarson.is