Stjórnarfundur um helgina!

29. október 2010 00:34

Fyrsti stjórnarfundur 4. stjórnar SÍF verður haldinn núna um helgina í Menntaskólanum við Sund. Ýmislegt er á dagskránni og unnið verður í umræðuhópum auk þess sem spennandi verkefnum verður ýtt úr vör.

Umræðuhóparnir eru:
17. nóvember
Innritunarreglur í framhaldsskólanna
Forvarnardagurinn
Andleg og líkamleg velferð framhaldsskólanemenda

Nú stefnir í að sambandið stækki við sig og verður gaman að tilkynna ný aðildarfélög eftir helgi.

Nú þegar hefur verið sent boð í samráðshóp við Söngkeppni framhaldsskólanna. Fljótlega verður einnig sent boð í vinnuhópa SÍF þetta árið sem meðal annars koma að kynningarmálum sambandsins, forvörnum og áfengismælaumræðum.

Búast má við að gögn frá helginni komi inn á síðuna eftir helgi ásamt uppkasti að atburðadagskrá SÍF 2010-2011.

Ummæli:

Untitled Document

Eldri færslur

  • 17. nóvember 2011 15:02 | Lesa meira.

    17. nóvember Alþjóðlegur dagur námsmanna- Til hamingju námsmenn!

    Ekki láta þér bregða rekist þú á hóp námsmanna hlaupandi um stræti borgarinnar brosandi út að eyrum. Í dag fögnum við nefnilega alþjóðlegum degi námsmanna.
    Í áraraðir hefur 17. nóvember verið haldinn hátíðlegur en uppruna dagsins má rekja aftur til ársins 1939, þegar Þjóðverjar réðust inn í Tékkóslóvakíu. Meðal þeirra sem börðust gegn hersetu þjóðverja voru [...]

  • 12. október 2011 18:41 | Lesa meira.

    Samband íslenskra framhaldsskólanema óskar eftir að ráða starfsmann í stöðu verkefnastjóra

    Helstu verkefni eru upplýsingaþjónusta fyrir nemendur á framhaldsskólastigi, umsjón með sérverkefnum SÍF, og aðstoð við framkvæmd á árlegum verkefnum.
    Gerð er krafa um að viðkomandi hafi staðgóða þekkingu á menntamálum, góð tök á íslenskri og enskri tungu, reynslu af vinnu með ungu fólki, góða hæfni í mannlegum samskiptum og geti unnið sjálfstætt. Menntun sem nýtist í [...]

  • 4. október 2011 14:44 | Lesa meira.

    Fréttabréf Sambands íslenskra framhaldsskólanema

    Á næstu dögum mun SÍF senda frá sér fréttabréf, en stefnt er að því að senda út að jafnaði mánarlegt fréttabréf með fréttum af starfinu, upplýsingum um viðburði á vegum sambandsins og aðildafélaga, og tækifærum fyrir námsmenn innanlands og erlendis.
    Fréttabréfið verður sent á alla formenn nemendafélagann sem og sífara, en að auki verður það birt [...]

  • 20. september 2011 11:09 | Lesa meira.

    Ný framkvæmdastjórn SÍF kosin

    Síðastliðna helgi, 16.-17. september, fór fram 5. Þing Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Þingið fór fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð og var sótt af fulltrúum framhaldsskóla á Íslandi.
    Að venju var kosin ný framkvæmdastjórn sem hefur þegar tekið til starfa.
    Framkvæmdastjórn SÍF er svo skipuð:
    Formaður – Andri Steinn Hilmarsson
    Ritari – Eva Brá Axelsdóttir
    Gjaldkeri – Níels Þóroddsson
    Fulltrúi alþjóðamála – Lilja [...]

  • 15. september 2011 21:02 | Lesa meira.

    Fréttatilkynning SÍF

    Föstudaginn 16. September næstkomandi verður fimmti aðalfundur Sambands íslenskra framhaldsskólanema settur í húsakynnum Menntaskólans við Hamrahlíð af Heiðu Karen Sæbergsdóttur, formanns SÍF. Á fundinum verða 76 fulltrúar framhaldskóla á Íslandi.
    Helstu mál sem tekin verða fyrir á fundinum eru:
    Kennsluaðferðir; hvernig viljum við, framhaldsskólanemendur, að kennslu okkar sé háttað.
    Þátttaka nemenda; hvernig má auka þátttöku nemanda í félagsmálum [...]

  • 22. júní 2011 00:15 | Lesa meira.

    Stefán Rafn ráðinn ritstjóri Framhaldsskólablaðsins

    Framkvæmdastjórn SÍF réði Stefán Rafn Sigurbjörnsson sem ritstjóra Framhaldsskólablaðsins í byrjun vikunnar. Undirbúningur að útgáfunni hefur staðið yfir síðan í vor og fyrsta tölublaðið mun líta dagsins ljós í ágúst, þegar nám hefst.
    Stefán lauk stúdentsprófi af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ vorið 2008, og var forseti Nemendafélags FG, auk þess að keppa í Morfís fyrir hönd [...]

  • 13. júní 2011 21:17 | Lesa meira.

    Lokað á morgun 14. júní

    Skrifstofa SÍF verður lokuð 14. júní vegna sumarfría en opnar að nýju þann 15. júní.
    Gleðilegt sumar!

  • 23. maí 2011 11:29 | Lesa meira.

    Framhaldsskólablaðið

    Samband íslenskra framhaldsskólanema mun frá og með næsta hausti hefja reglubundna útgáfu á blaði fyrir framhaldsskólanema, sem verður dreift í alla framhaldsskóla landsins. Við stefnum á útgáfu fjögurra tölublaða á næsta skólaári, og það fyrsta á að koma út um leið og skólarnir byrja.
    Við vonum að okkur takist að búa til gott blaðð þar sem [...]

  • 23. maí 2011 11:27 | Lesa meira.

    SÍF óskar eftir ritstjóra að framhaldsskólablaði

    Samband íslenskra framhaldsskólanema leitar að ritstjóra sem á að ritstýra blaði fyrir framhaldsskólanema. Starfið er hlutastarf og getur hentað vel með námi. Gefin verða út fjögur tölublöð á skólaárinu 2011-2012, það fyrsta í ágúst næstkomandi. Í starfi ritstjóra felst að sjá um efni blaðsins, að sjá um samskipti við aðildarfélög SÍF í því skyni að [...]

  • 1. maí 2011 14:55 | Lesa meira.

    Höldum áfram – eflum menntun! (1.mai ræða félagsins)

    Ágætu fundargestir
    Samfélag okkar glímir við margþættan vanda sem snertir okkur öll. Þessi vandi birtist okkur meðal annars í sívaxandi atvinnuleysi ungs fólks. Um 18% atvinnulausra er ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Af þeim eru 75% sem aðeins hafa lokið grunnskólaprófi. Skólakerfið hefur ekki getað tekið við öllum þeim fjölda ungs fólks sem þangað hefur leitað og það hefur [...]


Hönnun: thordarson.is