Creative campaigning an innovative activism
7. júní 2010 15:25
Creative campaigning an innovative activism er yfirskrift skemmtilegs og skapandi námskeiðs sem Samband Íslenskra Framhaldsskólanema í samvinnu við Evrópu Unga Fólksins og sambærileg félög frá öðrum evrópulöndum stendur fyrir daganna 16 – 21 júní 2010.
Á námskeiðinu verður reynt að finna nýjar og meira skapandi leiðir til að koma skilaboðum ungs fólks til samfélagsins og áhrifavalda.
Unnið verður bæði úti og inni ásamt því að farið verður í heimsókn í félög og fyrirtæki til að kynnast hvernig þerra markaðs og kynningarstarf fer fram. Meðal fyrirlestra er kynning á herferðinni „Inspired by Iceland“, fyrirlestur og umræða um hvernig við getum nýtt kraftinn sem í internetinu býr ásamt, grunnur að markaðsfræði í skapandi umhverfi með fólki frá misjöfnum menningarheimum.
Skráning og allar nánari upplýsingar má finna Hér

Untitled Document
- 17. nóvember 2011 15:02 | Lesa meira.
Ekki láta þér bregða rekist þú á hóp námsmanna hlaupandi um stræti borgarinnar brosandi út að eyrum. Í dag fögnum við nefnilega alþjóðlegum degi námsmanna.
Í áraraðir hefur 17. nóvember verið haldinn hátíðlegur en uppruna dagsins má rekja aftur til ársins 1939, þegar Þjóðverjar réðust inn í Tékkóslóvakíu. Meðal þeirra sem börðust gegn hersetu þjóðverja voru [...]
- 12. október 2011 18:41 | Lesa meira.
Helstu verkefni eru upplýsingaþjónusta fyrir nemendur á framhaldsskólastigi, umsjón með sérverkefnum SÍF, og aðstoð við framkvæmd á árlegum verkefnum.
Gerð er krafa um að viðkomandi hafi staðgóða þekkingu á menntamálum, góð tök á íslenskri og enskri tungu, reynslu af vinnu með ungu fólki, góða hæfni í mannlegum samskiptum og geti unnið sjálfstætt. Menntun sem nýtist í [...]
- 4. október 2011 14:44 | Lesa meira.
Á næstu dögum mun SÍF senda frá sér fréttabréf, en stefnt er að því að senda út að jafnaði mánarlegt fréttabréf með fréttum af starfinu, upplýsingum um viðburði á vegum sambandsins og aðildafélaga, og tækifærum fyrir námsmenn innanlands og erlendis.
Fréttabréfið verður sent á alla formenn nemendafélagann sem og sífara, en að auki verður það birt [...]
- 20. september 2011 11:09 | Lesa meira.
Síðastliðna helgi, 16.-17. september, fór fram 5. Þing Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Þingið fór fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð og var sótt af fulltrúum framhaldsskóla á Íslandi.
Að venju var kosin ný framkvæmdastjórn sem hefur þegar tekið til starfa.
Framkvæmdastjórn SÍF er svo skipuð:
Formaður – Andri Steinn Hilmarsson
Ritari – Eva Brá Axelsdóttir
Gjaldkeri – Níels Þóroddsson
Fulltrúi alþjóðamála – Lilja [...]
- 15. september 2011 21:02 | Lesa meira.
Föstudaginn 16. September næstkomandi verður fimmti aðalfundur Sambands íslenskra framhaldsskólanema settur í húsakynnum Menntaskólans við Hamrahlíð af Heiðu Karen Sæbergsdóttur, formanns SÍF. Á fundinum verða 76 fulltrúar framhaldskóla á Íslandi.
Helstu mál sem tekin verða fyrir á fundinum eru:
Kennsluaðferðir; hvernig viljum við, framhaldsskólanemendur, að kennslu okkar sé háttað.
Þátttaka nemenda; hvernig má auka þátttöku nemanda í félagsmálum [...]
- 22. júní 2011 00:15 | Lesa meira.
Framkvæmdastjórn SÍF réði Stefán Rafn Sigurbjörnsson sem ritstjóra Framhaldsskólablaðsins í byrjun vikunnar. Undirbúningur að útgáfunni hefur staðið yfir síðan í vor og fyrsta tölublaðið mun líta dagsins ljós í ágúst, þegar nám hefst.
Stefán lauk stúdentsprófi af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ vorið 2008, og var forseti Nemendafélags FG, auk þess að keppa í Morfís fyrir hönd [...]
- 13. júní 2011 21:17 | Lesa meira.
Skrifstofa SÍF verður lokuð 14. júní vegna sumarfría en opnar að nýju þann 15. júní.
Gleðilegt sumar!
- 23. maí 2011 11:29 | Lesa meira.
Samband íslenskra framhaldsskólanema mun frá og með næsta hausti hefja reglubundna útgáfu á blaði fyrir framhaldsskólanema, sem verður dreift í alla framhaldsskóla landsins. Við stefnum á útgáfu fjögurra tölublaða á næsta skólaári, og það fyrsta á að koma út um leið og skólarnir byrja.
Við vonum að okkur takist að búa til gott blaðð þar sem [...]
- 23. maí 2011 11:27 | Lesa meira.
Samband íslenskra framhaldsskólanema leitar að ritstjóra sem á að ritstýra blaði fyrir framhaldsskólanema. Starfið er hlutastarf og getur hentað vel með námi. Gefin verða út fjögur tölublöð á skólaárinu 2011-2012, það fyrsta í ágúst næstkomandi. Í starfi ritstjóra felst að sjá um efni blaðsins, að sjá um samskipti við aðildarfélög SÍF í því skyni að [...]
- 1. maí 2011 14:55 | Lesa meira.
Ágætu fundargestir
Samfélag okkar glímir við margþættan vanda sem snertir okkur öll. Þessi vandi birtist okkur meðal annars í sívaxandi atvinnuleysi ungs fólks. Um 18% atvinnulausra er ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Af þeim eru 75% sem aðeins hafa lokið grunnskólaprófi. Skólakerfið hefur ekki getað tekið við öllum þeim fjölda ungs fólks sem þangað hefur leitað og það hefur [...]